fbpx
Þriðjudagur 02.september 2025
Eyjan

Svona er lífið undir vinstri stjórn

Egill Helgason
Laugardaginn 7. nóvember 2009 09:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það held ég að eftirfarandi texti sé fyndnasta blogg vikunnar. Hann birtist á vefsíðu Björns Bjarnasonar:

Ég fékk bréf frá vinstri-grænum bloggara í dag, sem sagði mér að hætta að skrifa hér á síðuna. Ég væri á eftirlaunum og ætti að ekki að láta í mér heyra opinberlega. Ég svaraði, að ég mundi ekki fara að þessum ráðum. Tilmælin um, að ég haldi mér saman vegna aldurs og fyrri starfa, sýna, að hinn vinstri græni bloggari vill, að skoðanir mínar á mönnum og málefnum hætti að birtast. Í Sovétríkjunum voru menn settir á geðveikrahæli til að þagga niður í þeim. Steingrímur J. Sigfússon boðaði netlögreglu á sínum tíma. Ætli henni verði ekki beitt gegn mér?

Semsagt:

Vinstri grænn bloggari sem ekki er nafngreindur segir Birni að hætta að skrifa af því hann er á eftirlaunum.

Steingrímur J. Sigfússon talaði einhvern tíma um netlögreglu. Hann – eða einhver – ætlar líklega að beita henni gegn Birni.

Nema að hann verði lokaður inni á geðveikrahæli eins og í Sovétríkjunum.

Á engilsaxnesku myndi þetta vera kallað logic by leaps and bounds.

Ég veit ekki hvað það kallast á íslensku.

Rökleiðsla í stórum stökkum, eða einfaldlega að vaða úr einu í annað?

Annars gekk ég um dimma götu í gærkvöldi. Þrír ungir menn hrópuðu á eftir mér:

„Kommúnisti!“

Hvað ætli það boði?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Velkominn herra skattstjóri!

Óttar Guðmundsson skrifar: Velkominn herra skattstjóri!
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hildur hætt sem þingflokksformaður

Hildur hætt sem þingflokksformaður
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sleggjudómar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sleggjudómar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Arnar Þór afhjúpar af hverju svo margir hægri menn studdu Katrínu – „Þetta var bara svona vá fyrir mér“

Arnar Þór afhjúpar af hverju svo margir hægri menn studdu Katrínu – „Þetta var bara svona vá fyrir mér“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja sleggjuna hafa verið of þunga fyrir Kristrúnu

Segja sleggjuna hafa verið of þunga fyrir Kristrúnu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hraðinn og nálægðin við viðskiptavininn er það sem heillar við smásöluna

Hraðinn og nálægðin við viðskiptavininn er það sem heillar við smásöluna
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Upp með Njálu

Óttar Guðmundsson skrifar: Upp með Njálu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Lokuðu á okkur í fyrra en vilja núna vera með

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Lokuðu á okkur í fyrra en vilja núna vera með