Lesandi síðunnar sendi þessa orðsendingu:
— — —
Var svo ó/heppinn eftir því hvernig menn líta á það að hlusta á þátt Sigurjóns Egilssonar í gærmorgun á leiðinni út í bakarí og þar voru þær öldnu hetjur Ragnar Arnalds, Styrmir og Jón Baldvin að karpa um stöðua mál og hrunið og sitt sýndist hverjum eins og gengur og gerist. Eitt vakti sérstaka athygli mina og fékk mig til að brosa hringinn.
Styrmir fór þar mikinn og sakaði alla helstu seðlabanaka Evrópu og þann bandaríska um að hafa lagst gegn íslensku bönkunum – ekki eins og það eigi að koma okkur hinum almenn á óvart eftir því hvernig menn óðu yfir holt og hæðir eins og þeir væru hinir einu sönnu bankamenn. Vel má vera að þetta sé allt satt og rétt hjá honum – en botninn tók eiginlega úr þegar að hann sagði: ”Á dögum kalda stríðsins hefðu Bandaríkjamenn aldrei látið þetta gerast.”
Maður veltir því fyrir sér þegar menn árið 2009 koma með svona ummæli, hvar eru menn staddir? Menn sem eru að tala um allt upp á borðið og opið þetta og opið hitt, fólkið á að kjósa um þessi og hin mál og svo framvegis.
Hef hvergi séð þetta dregið fram en finnst það með ólíkindum….