Vefritið Herðubreið er málgagn þess hluta Samfylkingarinnar sem dáði útrásina og trúir því að vissu leyti enn að hún hafi verið barasta fín. Oft hefur ritið tekið á óvæntan hátt til varna fyrir fyrrum fjármálasnillinga þjóðarinnar.
Fæstir úr þessum hópi leggja í að tjá hug sinn allan þessa dagana, en Herðubreið má eiga að hún liggur ekkert á skoðunum sínum.
Ritið tengist líka nánum böndum þeim hluta Samfó sem hefur stundum verið kallaður „Forsetaflokkurinn“.
Og Herðubreið bregst ekki á vaktinni nú fremur en endranær þegar túlkuð er skoðanakönnun sem sýndi að þriðjungur þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson segi af sér.
Það er raunar rétt hjá Herðubreið að fyrir þessu virðist ekki sérlega vera massívur stuðningur.
Stór hluti þjóðarinnar hefur nefnilega aldrei þolað Ólaf hvort eð er.
Og það hefur ekkert breyst.
En restin af þjóðinni umber hann. Aðdáunin er trauðla til staðar lengur, en flestum þykir sennilega of rótttækt að íslenskur forseti segi af sér á miðju kjörtímabili.
Jafnvel þótt hann sé það sem það sem í BNA kallast lame duck.