Lesandi sendi þessar línur:
— — —
Það er mikil bíræfni hjá endurskoðunarfyrirtækinu KPMG að auglýsa með heilsíðu í Fréttabl. ráðstefnu um Endurreisn, endurskipulagning á erfiðum tímum með þeim frummælendum sem þar eru upp taldir. KPMG, ekki frekar en önnur endurskoðunarfyrirtæki, hafa enn ekki bitið úr nálini með hver var ábyrgð þeirra á hruninu, hafandi skrifað upp á margt ærið misjafnt hjá fyrirtækjum útrásarvíkinganna undanfarin ár.
Fyrstur á mælendaskránni er Sigurður Jónsson framkv.stj. KPMG, faðir Jóns Sigurðssonar forstjóra FL-group, en KPMG varð að segja sig frá rannsókn á því fyrirtæki eftir að krafa kom um það frá höfuðstöðvum KPMG í London en Sigurði þessum fannst það ekki tiltökumál að hann eða fyrirtæki hans KPMG rannsakaði son hans. (FL-group var látið borga bílakostnað, Gumball og ýmislegt af dótinu sem Jón. Ásg. lék sér að)
Síðan er Birna Einarsdóttir, ein einstök heppni hennar er landsmönnum öllum í fersku minni, heppni sem nam hundruðum milljóna.
Síðan má telja Finn Oddsson, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs (Verslunarráðs), apparatsins sem lét hafa eftir sér að það Íslendingar væru annarar gerðar heldur en aðrir Norðurlandabúar, hér byggi fólk skjótt til ákvarðana en ekki silalegt og haldið einhverjum minnimáttarkomplex, eiginleikar sem best sæjust í fari útrásarvíkinganna.
Þrátt fyrir aðra sem þarna munu tala, einstaklinga sem mega ekki vamm sinn vita, þá er ótrúlegt að aðilar eins og KPMG og Viðskiptaráð ætli sér að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist, þeir hafi aðeins verið hlutlausir áhorfendur að öllu því sem gerðist.