Grímur Atlason skrifar þessa færslu á vef sinn. Ætli Jón Bjarnason, flokksbróðir hans, viti af þessu?
— — —
Útgerð árið 2009
Kvótaárið byrjaði fyrir rúmum mánuði. Athyglisvert að skoða hreyfingar á heimildum á vef Fiskistofu. Eitt af þeim útgerðarfyrirtækjum sem fékk úthlutað aflaheimildum er Eskja frá Eskifirði. Fyrirtækið fékk rúm 3500 þorskígildistonn, þar af tæp 1900 tonn í þorski. Fyrirtækið er nú þegar búið að leigja frá sér 2300 tonn – af því eru 1100 tonn í þorski. Ætli tekjur vegna þessa séu ekki 300 til 400 m.kr. í kassann án þess að fara á sjó. Þess ber að geta að fyrirtækið rekur uppsjávarskipin Jón Kjartansson og Aðalstein Jónsson. Þessi skip stunda kolmuna, loðnu og síld. Þau veiða engan þorsk.
Þetta er kerfið sem ekki má breyta.