fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025

„Hún fyllir mig innblæstri á hverjum degi“

Fókus
Fimmtudaginn 18. júlí 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þessi glæsilega kona kenndi mér allt um mátt þess að elska, sýna þakklæti og metnað og styrk,“ skrifar Ava Phillippe, dóttir leikkonunnar Reese Witherspoon undir mynd af móður sinni sem hún birti á samfélagsmiðli sínum. Þar að auki bætti hún við, „Hún fyllir mig innblástri á hverjum degi og hvetur mig áfram að lifa full þakklætis fyrir það líf sem mér hefur verið gefið og sýna öðrum samhug. Ég hugsa örlítið meira til hennar í dag en aðra daga.“

Ava, sem er 19 ára er augljóslega afar náin móður sinni en síðast sáust þær mæðgur ganga saman rauða dregilinn þegar önnur sería af þáttunum Big Little Liers var frumsýnd. Witherspoon birti mynd við það tilefni á samfélagsmiðli sínum og skrifaði fyrir neðan, „Skemmtilegt kvöld með stelpunni minni.“

Á síðasta ári skrifaði Witherspoon jafnframt hjartnæma færslu um einstakt samband þeirra mæðgna á bloggsíðu sinni, Love Reese blog. „Við getum talað saman út í hið óendanlega. Það er ekkert sem kemst í tæri við þá ást sem ég ber í garð dóttur minnar. Við deilum öllum okkar tilfinningum, vonum og draumum.“

Það tók því mjög á Witherspoon þegar dóttirin hélt af stað í framhaldsskóla síðasta haust. „Ég á barn sem er að ljúka fyrsta ári í leikskóla. Annað barn sem er að klára fyrsta árið í grunnskóla og svo dóttur sem er að enda við fyrsta árið í framhaldsskóla.“ Eldri börnin tvö, Ava og Deacon Philippe, 15 ára á hún með leikaranum Ryan Phillippe en örverpið, hinn sex ára gamli Tennessee á hún með núverandi eiginmanni sínum, Jim Toth.

„Það er skrítið þegar börnin yfirgefa heimilið og halda af stað út í lífið, ég hafði aldrei leitt hugann að því hversu erfitt þetta hlýtur að hafa verið fyrir móður mína á sínum tíma. Ég sit stundum tímunum saman í tómu herbergi Avu, ligg í rúminu hennar og græt. En þetta gengur vel og á endanum mun hún koma aftur heim. Hún er stödd hjá okkur núna í sumarfríi og hefur kennt mér mörg góð ráð þegar kemur að förðun og snyrtivörum. Ef ég þarf að gera mig fína fyrir kvöldverð leita ég óhikað til hennar og hún lagar augnskuggann minn á augabragði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Segir að þetta sé stærsta vandamál enska landsliðsins á næstu árum

Segir að þetta sé stærsta vandamál enska landsliðsins á næstu árum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Miklar breytingar boðaðar á MLS deildinni – Aðlaga sig að stærstu deildum Evrópu

Miklar breytingar boðaðar á MLS deildinni – Aðlaga sig að stærstu deildum Evrópu
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Sverrir Einar ákærður fyrir brot í rekstri fjögurra félaga – Segist hafa verið beittur ólöglegum aðgerðum

Sverrir Einar ákærður fyrir brot í rekstri fjögurra félaga – Segist hafa verið beittur ólöglegum aðgerðum
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Maður sem greip í leikkonu ákærður fyrir óspektir á almannafæri

Maður sem greip í leikkonu ákærður fyrir óspektir á almannafæri
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Nadine sár út í sinn gamla vinnustað – Vísir neitar að taka niður myndina af syni hennar

Nadine sár út í sinn gamla vinnustað – Vísir neitar að taka niður myndina af syni hennar
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Varaþingmaður Miðflokksins segir Vísi hafa birt stríðsyfirlýsingu – „Ekki láta ykkur bregða ef henni verður svarað“

Varaþingmaður Miðflokksins segir Vísi hafa birt stríðsyfirlýsingu – „Ekki láta ykkur bregða ef henni verður svarað“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.