fbpx
Sunnudagur 16.nóvember 2025

Lesið í tarotspil Donnu Cruz: Hún getur kvatt alla erfiðleika, hvort sem þeir eru andlegir eða fjárhagslegir

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 2. nóvember 2019 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donna Cruz er svo sannarlega á uppleið, en hún hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda fyrir leik sinn í kvikmyndinni Agnes Joy. DV ákvað því að lesa í tarotspil þessarar ungu og efnilegu leikkonu, en lesendum er bent á að þeir geta sjálfir dregið sér tarotspil á vef DV.

Bless erfiðleikar

Fyrsta spilið sem kemur upp er Hamingjuhjólið. Það táknar mikið hamingjutímabil framundan hjá Donnu og munu tækifæri í framtíðinni koma henni ánægjulega á óvart og færa henni betri tíma. Heppnin eltir Donnu og hamingjuhjólið snýst henni í hag. Hún getur kvatt alla erfiðleika, hvort sem þeir eru andlegir eða fjárhagslegir. Hún er heil í gegn hún Donna og upplifir almenna vellíðan. Þessi hamingja styrkir hana og þá sem skipta hana máli. Nú þarf hún að leyfa góðum hlutum að bera ríkulegan ávöxt. Næstu skref sem Donna stígur verða þakin hamingjudropum og mun hún taka sér göfug verkefni fyrir hendur.

Skapar sína eigin framtíð

Næst eru það 7 sverð sem táknar að vitsmunir Donnu eru meiri en hún gerir sér grein fyrir. Öflugar hindranir eru yfirstíganlegar á sama tíma og Donna er fær um að koma í veg fyrir hvers kyns vandræði. Framhald velgengni Agnesar Joy verður sniðið að þörfum Donnu ef hún leggur sig fram við að skapa sína eigin framtíð. Donna þarf að standa fast á sínu og þekkingu sinni á sjálfinu. Þannig getur hún fært sér í nyt nánast allt sem á vegi hennar verður.

Barn eða brúðkaup

Loks eru það 3 bikarar. Fjölskyldulíf Donnu er í blóma og hún myndar rík vináttubönd við gott fólk. Í spilunum felst merki um einhvers konar vöxt, nýtt ástarsamband eða barnsburð – jafnvel stóra hamingjustund eins og brúðkaup. Mikill fögnuður birtist þar sem Donna er gerandi og upplifir sterkar tilfinningar sem tengjast gleði og ómældri ást. Hamingjubikar ýtir undir vellíðan og framtíðin mun leiða Donnu áfram þar sem heilindi og jákvæð samskipti munu eiga sér stað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Voru misbjartsýnir eftir að Arnar horfði framhjá Jóa Berg – „Ótrúlegt afrek“

Voru misbjartsýnir eftir að Arnar horfði framhjá Jóa Berg – „Ótrúlegt afrek“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Hafði ekki erindi sem erfiði – Vildi ekki segja af hverju hún vildi koma sér upp hesthúsi

Hafði ekki erindi sem erfiði – Vildi ekki segja af hverju hún vildi koma sér upp hesthúsi
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Úttekt verður gerð á leikskólamálum í Reykjanesbæ – Segja líklegt að staðan sé enn verri en í Reykjavík

Úttekt verður gerð á leikskólamálum í Reykjanesbæ – Segja líklegt að staðan sé enn verri en í Reykjavík
Eyjan
Fyrir 19 klukkutímum

Kolbrún Bergþórsdóttir: Öllum er nákvæmlega sama um Sjálfstæðisflokkinn – hann hefur ekkert að segja

Kolbrún Bergþórsdóttir: Öllum er nákvæmlega sama um Sjálfstæðisflokkinn – hann hefur ekkert að segja
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

5 hlutir sem þú ættir að henda strax af baðinu

5 hlutir sem þú ættir að henda strax af baðinu
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Rekinn fyrir að mæta ekki í vinnuna og krafðist þá bóta

Rekinn fyrir að mæta ekki í vinnuna og krafðist þá bóta
Eyjan
Fyrir 23 klukkutímum

Jón Guðni Ómarsson: Gjaldmiðillinn stórt atriði sem stendur í vegi fyrir lægri langtímavöxtum – tvær hliðar á þeim pening

Jón Guðni Ómarsson: Gjaldmiðillinn stórt atriði sem stendur í vegi fyrir lægri langtímavöxtum – tvær hliðar á þeim pening
Fókus
Í gær

„Móðurafi minn sem var kennari kenndi mér að lesa þegar ég var fimm ára og eftir það var ég ekki öðrum háð um lestur“

„Móðurafi minn sem var kennari kenndi mér að lesa þegar ég var fimm ára og eftir það var ég ekki öðrum háð um lestur“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.