fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Pressan

Starfsmannastjóri sakaður um sérkennilegar og niðurlægjandi árásir á konur í atvinnuviðtölum

Pressan
Föstudaginn 28. nóvember 2025 07:00

Mynd/Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi starfsmannastjóri hjá franska menningarmálaráðuneytinu, Christian Nègre, bíður nú réttarhalda vegna gruns um að hafa byrlað yfir 240 konum ólyfjan í atvinnuviðtölum. Talið er að brotin hafi staðið yfir í um níu ár og er eitt það umfangsmesta sinnar tegundar í Frakklandi. Breska blaðið The Guardian fjallaði um málið á vef sínum í vikunni.

Samkvæmt frönskum fjölmiðlum og viðtölum sem The Guardian hefur tekið, á Nègre að hafa boðið umsækjendum kaffi eða te við komu þeirra í ráðuneytið í París.

Drykkirnir voru að sögn blandaðir einhvers konar þvagræsilyfi sem veldur því að skömmu eftir inntöku þarf viðkomandi að komast strax á klósett til að pissa.

Fjöldi kvenna lýsti svipuðum einkennum

Á Nègre að hafa stungið upp á að halda viðtölunum áfram utandyra og farið með konurnar í langar gönguferðir fjarri salernum.

Í umfjöllun Guardian kemur fram að fjöldi kvenna hafi lýst svipuðum einkennum; það er svima, skjálfta, hjartsláttarónotum og stjórnleysi við að halda í sér. Sumar neyddust til að pissa úti á almannafæri á meðan aðrar misstu þvag. Margar segja upplifunina hafa valdið langvarandi áfalli og skömm.

Ein þeirra sem Guardian ræðir við heitir Sylvie Delezenne og er 45 ára markaðsfræðingur frá Lille. Hún fór til Parísar árið 2015 eftir að Nègre hafði haft samband við hana á LinkedIn.

Hún segir að hún hafi þegið kaffi frá honum við komuna í ráðuneytið en Nègre leiddi hana síðan í gegnum Tuileries-garðana í löngu viðtali sem að sögn stóð yfir í nokkrar klukkustundir. Kveðst hún hafa upplifað líkamleg einkenni sem hún skildi ekki og mjög mikla þörf til að hafa þvaglát.

„Ég sagði að ég þyrfti smá pásu, en hann hélt áfram að ganga,“ sagði hún í viðtali við The Guardian. Að lokum kveðst hún hafa neyðst til að létta á sér á almannafæri skammt frá Seine-fljótinu. „Hann tók jakkann sinn og sagðist ætla að skýla mér. Mér fannst það einkennilegt,“ segir hún í viðtalinu.

Hún fór heim niðurbrotin, kenndi sjálfri sér um og fékk martraðir. Fjórum árum síðar hafði lögreglan samband við hana og höfðu þá fleiri konur lent í sambærilegum uppákomum.

Skráði allt niður

Málið kom fyrst upp árið 2018 þegar samstarfsmaður kvartaði undan Nègre fyrir að reyna að taka mynd af fótleggjum háttsetts embættismanns. Í kjölfarið fannst skjal í tölvu Nègre sem bar yfirskriftina Tilraunir en þar voru skráðir tímar, einkenni kvennanna og viðbrögð þeirra skráð skilmerkilega niður.

Nègre hefur verið ákærður fyrir margvísleg brot og bíður nú réttarhalda. Hann starfar ekki lengur í ráðuneytinu en í frétt Guardian kemur fram að hann starfi nú í einkageiranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísland upp um eitt sæti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf
Pressan
Fyrir 2 dögum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Upprættu satanískan barnaníðshring – „Þetta efni var sérstaklega skelfilegt“

Upprættu satanískan barnaníðshring – „Þetta efni var sérstaklega skelfilegt“
Pressan
Fyrir 6 dögum

29 ára ballerína slær frægum milljarðamæringum við – Hætti að dansa og tók mikla áhættu

29 ára ballerína slær frægum milljarðamæringum við – Hætti að dansa og tók mikla áhættu