fbpx
Þriðjudagur 23.september 2025

Eruði aldrei ein heima?: Kynlífsstellingarnar sem halda hávaðanum í lágmarki – Leynitrúboðinn og þögla öskrið

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 14. september 2019 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú býrð með öðru fólki, fjölskyldu eða vinum, þá getur það reynst erfitt að stunda kynlíf án þess að aðrir á heimilinu taki eftir því.

Oft þarf að bíða eftir því að allir hinir á heimilinu fari eitthvert út eða inn í rúm að sofa svo hægt sé að hreyfa sig um í rúminu með öðrum einstaklingi. Það eru eflaust fæstir sem vilja að aðrir á heimilinu heyri í bældum stunum eða í ískri frá rúminu.

Hér eru því nokkrar kynlífsstellingar sem Cosmopolitan tók saman en allar eiga þær eitt sameiginlegt. Þær geta hjálpað við það að halda hávaðanum í lágmarki í kynlífinu.

Leynitrúboðinn

Ef gormarnir í dýnunni þinni geta ekki haldið sér saman þá geturðu prófað trúboðan klassíska nema bara mjög hægt. Þetta getur verið mjög kynþokkafullt ásamt því sem þetta getur gert ykkur nánari í kynlífinu.

Þögla öskrið

Þetta er í rauninni bara skeiðin klassíska en í þögla öskrinu er notað kynlífstæki sem titrar en gefur ekki frá sér hávaða. Þið leggist saman í skeiðina og aðilinn sem er fyrir aftan leggur kynlífstækið síðan upp við þann sem er fyrir framan.

Gólfhundurinn

Ef rúmið ískrar þá er þessi staða fullkomin. Setjið kodda fyrir hnén á gólfið og síðan er farið í hundastellinguna. Ef það er ekki rúmið sem er með hávaðann heldur annað ykkar þá getur verið gott að sökkva andlitinu í koddann til að fela stunurnar. Síðan er líka hægt að spila tónlist með miklum bassa sem felur allar auka stunurnar sem koddinn nær ekki að fela.

Kapphlaupið

Ef fólkið á heimilinu fór út að sinna einhverju erindi þá er ekki mikið annað til ráða en að drífa sig og gera það hratt. Annað ykkar beygir sig yfir rúmið með eitt hné upp á dýnuna. Hinn stendur fyrir aftan með einn fót á gólfinu og hinn á dýnunni. Síðan er ekki annað í stöðunni en að demba sér inn og halda eins fast og hægt er á meðan verið er að drífa sig.

Klósettpásan

Ef það er engin leið til að losna við fólkið á heimilinu þá er hægt að skella sér á baðherbergið. Annað ykkar sest á vaskinn og hinn aðilinn er standandi. Láttu renna í bað á meðan svo þið getið verið með smá hávaða og síðan getiði skellt ykkur í baðið þegar fjörinu er lokið, þrifið ykkur og slakað á.

Feluleikurinn

Kveikið á mynd, sitjið saman á sófanum og hyljið ykkur með stóru teppi svo þið getið farið að leika ykkur undir teppinu. Ekki klæða ykkur úr fötunum, best er að vera í fötum sem hægt er að teygja svolítið. Ef einhver labbar inn þá bara stoppiði og reynið að virðast vera saklaus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Leikkonan fékk á baukinn – Sjáðu hvað hún gaf 16 ára dóttur sinni í afmælisgjöf

Leikkonan fékk á baukinn – Sjáðu hvað hún gaf 16 ára dóttur sinni í afmælisgjöf
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Foreldrar tveggja 17 ára drengja þurfa að greiða milljónir eftir heimskulegt uppátæki þeirra

Foreldrar tveggja 17 ára drengja þurfa að greiða milljónir eftir heimskulegt uppátæki þeirra
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Atvik sem sást ekki í beinni útsendingu – Garnacho fékk kaldar kveðjur frá leikmanni United

Atvik sem sást ekki í beinni útsendingu – Garnacho fékk kaldar kveðjur frá leikmanni United
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Höfrungar nota kúlufiska til að komast í vímu

Höfrungar nota kúlufiska til að komast í vímu
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Skellt í lás hjá Sælunni Reykjavík – Mygla í ljósabekkjum og hatrammar deilur eigenda

Skellt í lás hjá Sælunni Reykjavík – Mygla í ljósabekkjum og hatrammar deilur eigenda
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Pólverjar að bætast í sniðgönguhópinn – „Að mínu mati ættum við ekki að taka þátt í Eurovision ef Ísrael fær að taka þátt“

Pólverjar að bætast í sniðgönguhópinn – „Að mínu mati ættum við ekki að taka þátt í Eurovision ef Ísrael fær að taka þátt“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Fundu sex kíló af kókaíni – Þrír í gæsluvarðhaldi

Fundu sex kíló af kókaíni – Þrír í gæsluvarðhaldi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

EIginkona eiganda West Ham að munnhöggvast við stuðningsmenn félagsins sem eru reiðir

EIginkona eiganda West Ham að munnhöggvast við stuðningsmenn félagsins sem eru reiðir

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.