fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025

Sakar Spears um ofbeldi gegn börnunum – Lagði hendur á 13 ára soninn

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 4. september 2019 12:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður Britney Spears, hefur ásakað Jamie Spears, föður Britney Spears, um að hafa framið ofbeldi gegn börnunum sem hann á með Britney.

Kevin á tvo syni með Britney, þá Jayden James Federline og Sean Preston Federline en þeir eru 12 og 13 ára gamlir. Samkvæmt heimildum E! News lagði Kevin fram kæru á hendur Jamie Spears þann 25. ágúst.

Atvikið sem var kært fór fram á heimili Jamie en á TMZ er sagt að hann hafi á einhverjum tímapunkti lagt hendur á Sean. Britney Spears hefur enn ekki talað um málið opinberlega.

Samkvæmt E! News þá hefur Kevin fengið nálgunarbann á fyrrverandi tengdaföður sinn fyrir syni sína. Heimildarmaður þeirra segir að hvorki Jamie né Britney hafi verið mótfallin nálgunarbanninu en bannið gerir það að verkum að Jamie getur ekki verið með barnabörnunum sínum og bannar honum að vera forráðamaður þeirra á meðan þau eru í umsjón Britney.

Í dómskjölum sem E! News hefur undir höndum má sjá að fyrrverandi hjónin hafa gert nýjan samning um forsjá yfir börnunum sínum. Kevin fær núna 70% forsjá yfir þeim á meðan Britney hefur einungis 30% forsjá yfir börnunum. Áður höfðu þau samþykkt að skipta forsjánni jafnt á milli sín.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Umboðsmaðurinn útilokar endurkomu til Chelsea

Umboðsmaðurinn útilokar endurkomu til Chelsea
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Orðið á götunni: Guðrún sækir í uppskriftabók Davíðs – en hún er enginn Davíð

Orðið á götunni: Guðrún sækir í uppskriftabók Davíðs – en hún er enginn Davíð
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Þættir um íslenskt grín fengu enga endurgreiðslu – Skýringar á því voru ófullnægjandi

Þættir um íslenskt grín fengu enga endurgreiðslu – Skýringar á því voru ófullnægjandi
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Staðfesta meiðsli Trent en þarf að fara í frekari rannsóknir

Staðfesta meiðsli Trent en þarf að fara í frekari rannsóknir
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stjarnan þarf að borga sektina til KSÍ en segir mistökin hafa verið mannleg

Stjarnan þarf að borga sektina til KSÍ en segir mistökin hafa verið mannleg
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ríkisendurskoðandi tilkynntur til lögreglu fyrir að árita reikninga án þess að vera löggiltur endurskoðandi

Ríkisendurskoðandi tilkynntur til lögreglu fyrir að árita reikninga án þess að vera löggiltur endurskoðandi

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.