fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Þjófur stal fyrir eina og hálfa milljón en sá svo eftir öllu saman

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. september 2024 13:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjölmörg þjófnaðarbrot. Segja má að maðurinn hafi verið stjórnlaus sumarið 2023 því þá gerðist hann sekur um hrinu þjófnaðarbrota í verslunum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og stal fyrir rúmlega eina og hálfa milljón króna.

Maðurinn herjaði meðal annars á verslanir eins og Hagkaup, Elko og Lyfju þar sem hann stal dýrum vörum eins og ilmvötnum og raftækjum. Þá stal hann einnig matvöru; til dæmis einni agúrku, tómötum, lasagna frá 1944, ostapylsum og kjúklinganúðlum.

Fyrsta brot mannsins, samkvæmt ákæru, átti sér stað 15. mars 2023 þegar hann stal peysu, buxum og bol í Herragarðinum fyrir 86.000 krónur. Í tvígang í maí það ár stal hann svo ýmsum vörum úr Hagkaup og var verðmæti þeirra hátt í 400 þúsund krónur. Munaði þar mestu um nokkra rakspíra og snyrtivörur.

Hann hélt svo áfram að stela úr Hagkaupum í byrjun júní 2023 þar sem hann stal meðal annars níu ilmvötnum. Í Elko stal hann svo Nintendo Switch-leikjatölvu og JBL-heyrnartólum að söluverðmæti samtal 118.975 krónur og í Lyfju stal hann sjö ilmvötnum. Hann mætti svo aftur í Elko í júlí 2023 og stal Samsung Galaxy-úri sem kostaði tæpar 60 þúsund krónur og tveimur Apple Airpods Pro-heyrnartólum sem kostuðu samtals 109.990.

Í ágúst 2023 stal hann svo Gucci-handtösku úr verslun Collage the shop og svo frakka og bol úr versluninni Gallerí Sautján nokkrum dögum síðar. Síðasta brotið samkvæmt ákæru varðar svo þjófnað á úlpu úr verslun 66 Norður fyrr á þessu ári.

Ef marka má dóminn virðist maðurinn hafa glímt við fíkniefnadjöfulinn því tveir ákæruliðir snúa að akstri undir áhrifum kókaíns. Hann játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og þá kom fram í máli verjanda hans að hann iðrist mjög og brotin skýrðust að mestu leyti af dómgreindarleysi vegna fíkniefnaneyslu. Hann hafi nú gert reka að því að snúa við blaðinu og hafi fengið vinnu.

Fangelsisdómurinn yfir manninum er skilorðsbundinn til tveggja ára, en auk þess var hann sviptur ökuréttindum ævilangt. Loks var honum gert að greiða Hagkaup, Elko og Lyfju samtals tæpa milljón vegna þess sem hann stal úr verslununum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ísland í hringiðu risastórrar lögregluaðgerðar – 57 handteknir

Ísland í hringiðu risastórrar lögregluaðgerðar – 57 handteknir
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þarf að endurgreiða meira en hálfa milljón vegna gróða eiginmannsins

Þarf að endurgreiða meira en hálfa milljón vegna gróða eiginmannsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stálu í matvöruverslun, réðust á starfsmann og létu sig hverfa

Stálu í matvöruverslun, réðust á starfsmann og létu sig hverfa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólga vegna uppsagna í Þjóðminjasafninu – mikil reiði hjá hug-og félagsvísindafólki

Ólga vegna uppsagna í Þjóðminjasafninu – mikil reiði hjá hug-og félagsvísindafólki
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fékk inni á gistiheimili en lendir aftur á götunni á morgun – „Ég vona að Sanna hafi ekki verið að segja ósatt“

Fékk inni á gistiheimili en lendir aftur á götunni á morgun – „Ég vona að Sanna hafi ekki verið að segja ósatt“