fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Fréttir

Hversu oft má ég vinna heima? – Svar yfirmannsins vakti mikla athygli

Ritstjórn DV
Mánudaginn 10. júní 2024 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er engum blöðum um það að fletta að tilhögun vinnu okkar hefur breyst eftir kórónuveirufaraldurinn þar sem margir komust upp á lagið með að sinna vinnu sinni í fjarvinnu.

En hversu oft má maður vinna í fjarvinnu og er það fullkomlega eðlilegt að fólk sem vinnur dæmigerða skrifstofuvinnu mæti ekki nema endrum og eins á skrifstofuna?

Um þetta eru skiptar skoðanir en Tom Hunt, framkvæmdastjóri fyrirtækis sem heitir Fame, vakti mikla athygli á LinkedIn fyrir skemmstu þar sem hann sagði sína skoðun á málinu. Fame er fyrirferðamikið í hlaðvarpsbransanum og eru höfuðstöðvar þess í Bretlandi.

Í færslu sinni á LinkedIn sagðist Tom hafa fengið fyrirspurn frá starfsmanni um hvort að hún gæti sinnt vinnu sinni erlendis í sex vikur. „Hún byrjaði á að útskýra hvers vegna en ég stoppaði hana af og sagði við hana að það væri í góðu lagi, ég þyrfti ekki að fá neina útskýringu. Þú ákveður hvernig þú hagar þinni vinnu, sagði ég,“ segir Tom.

„Viltu vera í nýju landi í hverjum mánuði? Ekkert mál. Vera úti í garðinum heima hjá þér? Ekkert mál. Þarftu að fara til læknis í nokkra klukkutíma. Ekkert mál. Vinna frá kaffihúsi eftir að hafa skutlað krökkunum í skólann? Ekkert mál.“

Óhætt er að segja að færsla Toms hafi vakið athygli og hafa verið skrifaðar 9.000 athugasemdir við hana. Margir hrósa Tom fyrir að sýna starfsfólki sínu sveigjanleika en aðrir eru þeirrar skoðunar að hugmyndin hljómi kannski betur en hún er í raun og veru. „Ég hef fengið allar mínar bestu hugmyndir þegar ég hef setið innan um annað fólk þar sem hægt er að kasta boltanum á milli.“

News.com.au ræddi við Brett McAllen, framkvæmdastjóra Workspaces, sem segir það hafa ótvíræða kosti að mæta á vinnustaðinn og sinna vinnunni þar. Þar eigi bestu samtölin sér stað og þrátt fyrir góðan vilja sé erfitt fyrir fólk að ná sömu tengslum og nánd þegar unnið er í fjarvinnu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum
Fréttir
Í gær

Hópslagsmál á Suðurnesjum – Kýldi konu í andlitið sem æfði með honum box

Hópslagsmál á Suðurnesjum – Kýldi konu í andlitið sem æfði með honum box
Fréttir
Í gær

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi
Fréttir
Í gær

Sérfræðingur varar við – „Pútín vill ekki frið“

Sérfræðingur varar við – „Pútín vill ekki frið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar