fbpx
Miðvikudagur 29.október 2025
433Sport

Foreldrar óttaslegnir í Egilshöll um helgina: Ofbeldismál ungra drengja til skoðunar – „Réðst á okkar leikmann og kýldi hann í höfuðið“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 16. janúar 2024 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leiðinlegar uppákomur áttu sér stað í leik 3. flokks Fjölnis gegn Leikni í Reykjavíkurmótinu á sunnudag en tveir leikmenn síðarnefnda liðsins hafa verið sakaðir um að beita andstæðinga sína ofbeldi á velllinum og sýnt af sér ógnandi hegðun eftir hann. Foreldrar leikmanna Fjölnis eru uggandi vegna málsins en málið er komið inn á borð KSÍ.

Leikurinn fór fram í Egilshöll þar sem Fjölnir vann 14-0 sigur. Ýmislegt virðist þó hafa gengið á því þjálfarar og foreldrar leikmanna Fjölnis saka unga leikmenn Leiknis hreinlega um ofbeldi. Þá ber skýrslu KSÍ og frásögn viðstaddra ekki saman en samkvæmt leikskýrslunni fékk einn leikmaður Leiknis rautt spjald í leiknum en samkvæmt þeim sem voru á vellinum fóru tvö rauð spjöld á loft.

Að leik loknum var haft samband við lögreglu og hún látin vita af málinu en einnig var haft samband við Knattspyrnusambandið. Samkvæmt heimildum 433 var því haldið fram að leikmenn Leiknis hefðu verið í kringum svæðið í Egilshöll eftir leik og viljað gera upp málin.

Hjá Leikni er málið í skoðun en félagið fékk veður af þessum ásökunum í gær og ætlar að taka málið áfram,. „Það er ekkert sem við getum gefið út, það eru ásakanir. Það er verið að skoða þetta, við fréttum af þessu í gær og skoðum málið hjá okkur núna,“ segir Margeir Ingólfsson, þjálfari 3 flokks karla hjá Leikni.

Einn af þjálfurum 3 flokks karla hjá Fjölnir ritaði færslu í hóp fyrir foreldra um málið og fékk þar mikil og sterk viðbrögð. „Í hálfleik kom upp staða sem ég hef aldrei upplifað áður í fótbolta sem betur fer. Leikmaður Leiknis Reykjavíkur réðst á okkar leikmann og kýldi hann í höfuðið. Við lítum alvarlegum augum á þetta og málið er í vinnslu innahús hjá okkur. Búið er að hafa samband við KSÍ og Bjössi yfirþjálfari hafði samband við Leiknir. Þetta er hegðun sem á ekki að sjást í fótbolta,“ skrifar Matthías Ásgeir Ramos Rocha, annar af þjálfurum liðsins.

Leikmenn Fjölnis voru samkvæmt foreldrum smeykir að leik loknum og fóru einhverjir þeirra út úr Egilshöll bakdyramegin til þess að sleppa við meira áreiti.

Foreldrar óttaslegnir:

Foreldrar leikmanna í liði Fjölnis voru nokkuð uggandi vegna málsins og ræddu það í spjallhópi foreldra. Einn þeirra hafði samband við DV en vildi þó ekki blanda nafni sínu í þessa umræðu.

„Í stuttu máli höguðu tveir leikmenn Leiknis sér eins og villidýr, einsettu sér að slasa andstæðinga sína að því er virtist og veittust að þeim með munnsöfnuði sem ekki er hafandi eftir,“ segir þessi foreldri í samtali við DV.

Foreldrið segir að leikmenn Leiknis sem hafi misst stjórn á sér. „Þeir vildu innleiða lögmál götunnar inn í fótboltaleik og voru félaginu sínu til skammar. Þeir brugðust liðsfélögun sínum og reyndu að hóta, slasa og ógna andstæðingum sínum á meðan leik stóð, og löngu eftir að honum var lokið.“

Í umræðuhópi á meðal foreldra hjá Fjölni er málið rætt og er leikmönnum liðsins hrósað fyrir hvernig þeir tókust á við þessa erfiðu uppákomu í leiknum. Þá er því haldið fram að umræddir leikmenn Leiknis hafi mætt upp í Spöng, verslunarmiðstöð rétt hjá Egilshöll, í „leit að leiðindum.“  Haft var samband við lögregluna sem hafði þó enginn afskipti af neinu.

Félögin ræða nú sín á milli um málið og freista þess að leysa það í bróðerni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ratcliffe mun ekki leyfa Amorim að sækja stórstjörnuna

Ratcliffe mun ekki leyfa Amorim að sækja stórstjörnuna
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gleðitíðindi fyrir stuðningsmenn Arsenal

Gleðitíðindi fyrir stuðningsmenn Arsenal
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Tvö ensk félög með Greenwood á blaði – Átta sig á fjaðrafokinu sem fylgir því að fá hann

Tvö ensk félög með Greenwood á blaði – Átta sig á fjaðrafokinu sem fylgir því að fá hann
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stjarnan fann nýja köllun eftir að nauðgunardómur hans var felldur niður – Opnar sig um nýtt hlutverk í lífinu

Stjarnan fann nýja köllun eftir að nauðgunardómur hans var felldur niður – Opnar sig um nýtt hlutverk í lífinu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Eigandi Celtic sendir kaldar kveðjur á Brendan Rodgers – Sjálfselskur og sundrandi

Eigandi Celtic sendir kaldar kveðjur á Brendan Rodgers – Sjálfselskur og sundrandi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin – Spáir hruni hjá Amorim innan tíðar en Arsenal pakkar deildinni saman

Ofurtölvan stokkar spilin – Spáir hruni hjá Amorim innan tíðar en Arsenal pakkar deildinni saman
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vilji eiginkonu Harry Kane högg í maga enskra liða

Vilji eiginkonu Harry Kane högg í maga enskra liða