fbpx
Miðvikudagur 28.maí 2025
Fréttir

Ekki enn búið að birta Dagbjörtu ákæru – Talin hafa pyntað mann til dauða

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 9. janúar 2024 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ákæra gegn Dagbjörtu Rúnarsdóttur, sem sökuð er um að hafa orðið sambýlismanni sínum að bana með langvarandi misþyrmingum, var gefin út þann 15. desember síðastliðinn. Þrátt fyrir það er enn ekki búið að birta Dagbjörtu ákæruna.

Málið kom upp laugardagskvöldið 23. september síðastliðinn. Þær upplýsingar fengust hjá Arnþrúði Þórarinsdóttur, saksóknara í málinu, að ákæran væri í höndum Héraðsdóms Reykjavíkur. Þangað var hún send í desember. Héraðsdómur á síðan að birta svokallað fyrirkall í málinu með dagsetningu á þingfestingu þess. Eftir það getur héraðssaksóknari birt sakborningi ákæruna og jafnframt afhent hana fjölmiðlum. En fyrirkall hefur ekki borist frá Héraðdsómi Reykjavíkur. DV hafði samband þangað og leitaði upplýsinga um afdrif ákærunnar en ekki náðist í dómstjóra. Upplýsinga er að vænta síðar í dag frá dómstólnum.

Þrátt fyrir að fjölmiðlar séu ekki með ákæru í málinu undir höndum hafa þegar komið fram miklar upplýsingar um það, nánar tiltekið í gæsluvarðhaldsúrskurði sem kveðinn var upp í desember og birtur eftir áramót. Þar kemur fram að Dagbjört virðist hafa pyntað manninn til dauða. Í frétt DV um gæsluvarðhaldsúrskurðinn segir:

„Dagbjört Rúnarsdóttir, 42 ára gömul kona, hefur verið ákærð fyrir að myrða sambýlismann sinn, 58 ára gamlan mann, að heimili þeirra í Bátavogi þann 23. september síðastliðinn. DV bíður þess að fá ákæruna í hendur, en það verður á allra næstu dögum.

Í dag var hins vegar birtur á vefsíðu dómstólanna gæsluvarðhaldsúrskurður Landsréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Dagbjörtu frá því í síðasta mánuði. Í úrskurðinum er að finna afar óhugnanlegar lýsingar á meintu ofbeldi Dagbjartar gegn hinum látna, en hún virðist hafa misþyrmt manninum í meira en sólarhring áður en hann lést. Miðað við þær lýsingar má nánast fullyrða að hún hafi pyntað manninn til dauða. Lögreglan hefur meðal annars undir höndum töluvert af myndböndum sem sýna misþyrmingarnar auk þess sem krufning á hinum látna talar sínu máli.

Í úrskurði héraðsdóms segir meðal annars:

„Fyrir liggur fjöldinn allur af myndböndum og hljóðupptökum frá 22. og 23. september sl., tekin á síma brotaþola og kærðu. Myndefnið er um tvær og hálf klukkustund að lengd og nær yfir tímabil frá hádegi á föstudeginum 22. september til rúmlega eitt næsta dag. Í myndböndunum má sjá og heyra kærðu valda brotaþola ítrekuðum líkamsmeiðingum, líkamlegum sársauka og þjáningu. Gerð var réttarkrufning á brotaþola þann 26. september. Á líkinu voru miklir áverkar, dreifðir yfirborðsáverkar víðs vegar um líkamann og þó nokkur beinbrot m.a. í nefi, hálsi, fingrum, rifbeinum og sköflung. Þá var töluverð innvortis blæðing í axlarvöðvum og í lærvöðva. Útlit áverkanna benda til þess að þeir hafi komið til við aðför annars manns, hið minnsta í formi högga eða sparka í andlit, klof og bol, höggs í vinstri fótlegginn og taks um hálsinn. Engir sjúkdómar komu fram við krufningu sem skýra andlátið.“

Þá segir einnig að svo virðist sem áverkarnir geti ekki hafa komið til af slysni heldur hafi orðið við árás annarrar manneskju. Áverkarnir hafi verið nægilega miklir til að valda dauða. Einnig er það álit réttarlæknis að áverkarnir hafi verið nýlegir og komið til rétt fyrir dauða mannsins, eða sólarhringinn á undan.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Hnífstunga á Húsavík – Einn með talsverða áverka

Hnífstunga á Húsavík – Einn með talsverða áverka
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Sakar bæjarstjóra um að kasta íþróttafélögum fyrir rútuna til að bjarga andliti – „Ekki er það nú stórmannlega gert“

Sakar bæjarstjóra um að kasta íþróttafélögum fyrir rútuna til að bjarga andliti – „Ekki er það nú stórmannlega gert“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Helga Magnúsi boðinn flutningur í starfi – Embætti sem ekki hefur verið skipað frá 2010

Helga Magnúsi boðinn flutningur í starfi – Embætti sem ekki hefur verið skipað frá 2010
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Flugvél nauðlenti á Suðurlandsvegi í gærkvöldi

Flugvél nauðlenti á Suðurlandsvegi í gærkvöldi
Fréttir
Í gær

Halla lætur sérhagsmunaöflin finna fyrir því – Leigan fór úr 260 þúsund krónum í 430 þúsund

Halla lætur sérhagsmunaöflin finna fyrir því – Leigan fór úr 260 þúsund krónum í 430 þúsund
Fréttir
Í gær

Ásthildur snýr aftur í dag

Ásthildur snýr aftur í dag
Fréttir
Í gær

Börnin fá ekki að upplifa Ísland eins og hann fékk að gera – Orðið allt of dýrt að ferðast innanlands

Börnin fá ekki að upplifa Ísland eins og hann fékk að gera – Orðið allt of dýrt að ferðast innanlands
Fréttir
Í gær

Rottur á ferli í Grafarvogi – Hafa sést klifra upp veggi fjölbýlishúsa

Rottur á ferli í Grafarvogi – Hafa sést klifra upp veggi fjölbýlishúsa