fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
Fréttir

Tinna kallar eftir lagabreytingum svo meirihluti íbúa geti bannað reykingar í fjöleignarhúsum – „Er svarið ekki nokkuð augljóst?“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 23. nóvember 2023 11:15

Tinna Andrésdóttir leggur til lagabreytingu varðandi reykingar í fjöleignarhúsum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tinna Andrésdóttir, lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu, kallar eftir lagabreytingum þess efnis að 2/3 hluti íbúa í fjöleignarhúsum geti bannað reykingar í og við fjöleignahús . Þetta kemur fram í aðsendri grein hennar sem birtist á Vísi nú í morgun.

Í greininni kemur fram að inn á borð Húseigendafélagsins rati reglulega fjölmörg mál vegna ónæðis reykinga íbúa í fjöleignarhúsum. „Reykingar eru oft stundaðar á svölum, sérafnotaflötum og/eða lóðum fjöleignarhúsa í algjöru óhófi en til eru dæmi um að íbúar íbúða skiptast á að fara út yfir allan daginn, öll kvöld og jafnvel á næturnar líka. Þá geta íbúar nærliggjandi eigna hvorki haft opinn glugga né dyr á íbúðum sínum. Sumir íbúðareigendur geta ekki nýtt garða sína þar sem nágrannar þeirra reykja viðstöðulaust svo að reyk leggur yfir allan garðinn. Í öðrum tilfellum hafa reykingar í og við íbúðir oft engin áhrif á aðra íbúa hússins og því ekki tilefni til þess að bregðast við,“ skrifar Tinna.

Umburðarlyndi gagnvart reykingum að minnka

Húseigendur séu hins vegar í erfiðri stöðu því engin bein ákvæði eru um reykingar í fjöleignarhúsalögum. Þar sé einungis ákvæði um að íbúar skuli ekki valda öðrum íbúum óþarfa ama og óþægindum. Það sé vissulega hægt að túlka reykingar þannig í verstu tilfellum en tæplega sé þó hægt að banna reykingar í og við íbúðir nema með samþykki allra eigenda í fjölbýlishúsum. Tinna telur þó að tímarnir séu að breytast, umburðalyndi fyrir reykingum að minnka og réttarþróunin sé í átt að frekari þrengingum varðandi reykingar.

„Í tóbaksvarnarlögum frá árinu 2002 var lagt bann við reykingum í sameiginlegu húsrými fjöleignarhúsa. Slíkt bann nær þó ekki til reykinga á sameiginlegri lóð, á svölum íbúða eða sérafnotaflötum sem lögum samkvæmt telst séreign. Vald húsfélaga til að setja reglur um hagnýtingu séreigna eru mun þrengri en þegar um sameign er að tefla. Meginreglan er sú að eigandi má gera það í sinni eign sem telst venjulegt og eðlilegt. Stórfelldar og tillitslausar reykingar á svölum íbúða falla ekki þar undir. Ótækt er að leggja bann við reykingum því að sá sem stundar reykingarnar myndi aldrei veita sitt samþykki fyrir banninu. Lögin taka samt á athöfnum íbúa sem valda öðrum ónæði og því þyrfti að senda reykingarfólkinu áskorun í von um að þau láti af reykingunum. Ef reykingafólkið lætur ekki segjast getur húsfélagið eða þolendur gripið til þeirra úrræða sem fjöleignarhúsalögin hafa að geyma og í grófum tilvikum krafist þess að viðkomandi flytji og selji íbúð sína. Það er langt, strangt og kostnaðarsamt ferli þar sem nauðsynlegt er að fá úrskurð dómara og aðkomu sýslumanns,“ skrifar Tinna.

Margskonar ávinningur af slíku reykingabanni

Hún bendir á að yfirlýst markmið tóbaksvarnarlaga sé að virða skuli þann rétt fólks að þurfa ekki að anda að sér lofti sem er mengað tóbaksreyk af völdum annarra með tilheyrandi skaða. Telur hún því að bann við reykingum í fjöleignarhúsi geti stuðlað að margskonar ávinningum en það hafi Alþjóða heilbrigðismálastofnunin og Krabbameinsfélagið hér á landi líka bent á.

„Það að leggja bann við reykingum í nærumhverfi fólks verndar alla fyrir hættunni sem fylgir óbeinum reykingum. Það getur breytt félagslegum viðmiðum með því að gera reykingar síður ásættanlegar sem dregur bæði úr beinum og óbeinum reykingum. Auk þess getur það minnkað hættuna á því að fólk verði fyrir óbeinum reykingum og dregur úr heilsufarslegum ójöfnuði ásamt því að draga úr hættu á hjartasjúkdómum og sjúkdómseinkennum í öndunarfærum. Er ekki kominn tími á að styrkja rétt íbúa að búa í reyklausu umhverfi með beinum lagaákvæðum? Hægt væri að breyta lögunum á þann veg að aukinn meirihluti (2/3) eigenda geti lagt bann við stórfelldum reykingum á svölum, séreignarflötum og lóð fjöleignarhúsa. Þá yrði bannið fært í húsreglur og þeim þinglýst á hvern eignarhluta,“ skrifar Tinna.

Ísland í fararbroddi

Hún segir það vel við hæfi að íslensk stjórnvöld taki þetta skref því Ísland hafi í áranna rás verið í farabroddi í heiminum í lagasetningu og forvörnum á sviði tóbaksvarna og mörg lönd litið hingað til lands þegar marka á stefnu í tóbaksvörnum.

„Frá 1985 hefur þrisvar verið hert á ákvæðum tóbaksvarnarlaga í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að fólk þurfi að anda að sér tóbaksreykt frá öðrum. Þrátt fyrir markmið tóbaksvarnarlaga getur verið afar erfitt fyrir eigendur í fjölbýlishúsum að leggja bann við reykingum í og við húsið, þar sem lög um fjöleignarhús setja þröngar skorður við reglum hvað varðar hagnýtingu séreignar. Lagabreytingar sem þessar eru ekki ný af nálinni. Árið 2011 var lögum um fjöleignarhús breytt að því leyti að aðeins þurfti samþykki aukins meirihluta eigenda fyrir hunda- og kattahaldi í fjölbýlishúsum, sem áður þurfti samþykki allra. Þá þarf ekki samþykki annarra fyrir hunda- og kattahaldi ef um er að ræða sérinngang eignarhluta. Á þeim tíma var æ algengara að fólk héldi gæludýr og umburðarlyndi gagnvart þeim jókst til muna.Voru lögin rýmkuð að þessu leyti með heilt yfir góðum árangri og fáum árekstrum,“ skrifar Tinna.

Hún bendir á að reykingar eru á hröðu undanhaldi og að hennar mati geti markmið tóbaksvarnarlaga ekki náð fram að ganga ef eigendur fjölbýlishúsa geta ekki lagt bann við stórfelldum reykingum nema að sækja rétt sinn, að búa í reyklausu umhverfi, til dómstóla.

„Þá verðum við að vega og meta þann rétt eigenda að stunda sínar reykingar hvar og hvenær sem er og þann rétt eigenda að búa í reyklausu umhverfi. Er svarið ekki nokkuð augljóst?“ spyr Tinna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Kótelettan hefur safnað nærri 20 milljónum fyrir krabbameinsveik börn

Kótelettan hefur safnað nærri 20 milljónum fyrir krabbameinsveik börn
Fréttir
Í gær

Skýtur á menningu íslenskra samfélagsmiðlastjarna – „Athyglin er aðalgjaldmiðillinn og allt er notað í gróðaskyni“

Skýtur á menningu íslenskra samfélagsmiðlastjarna – „Athyglin er aðalgjaldmiðillinn og allt er notað í gróðaskyni“
Fréttir
Í gær

Fastus vann stærsta sjúkrabílaútboð á Íslandi

Fastus vann stærsta sjúkrabílaútboð á Íslandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Myndaði konur á salerni heimilis síns – Ákærður fyrir kynferðisbrot

Myndaði konur á salerni heimilis síns – Ákærður fyrir kynferðisbrot