fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Segir að Vesturlönd eigi á hættu að snúa stríðinu Rússum í vil – Þetta er ástæðan

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 10. ágúst 2023 04:04

Rússneskur skriðdreki. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þrátt fyrir alvarlega stöðu í yfirstandandi gagnsókn úkraínska hersins, halda Vesturlönd áfram að banna Úkraínu að nota vestræn vopn til árás á rússneskt landsvæði af ótta við að það verði lokaskrefið í að æsa rússneska björninn.“

Svona hefst grein eftir eftir Sean Bell, hernaðarsérfræðing, á vef Sky News, þar sem segir að Vesturlönd eigi á hættu að snúa gangi stríðsins Rússum í vil.

Hann segir að þrátt fyrir að Úkraínumenn séu að berjast fyrir tilvist landsins sem sjálfstæðs ríkis og að Rússar geti gert harðar árásir á úkraínskt landsvæði, þá vilji Vesturlönd ekki leyfa Úkraínumönnum að nota vestræn vopn til árása á rússneskt landsvæði af ótta við að það muni leiða til stigmögnunar átakanna.

„En hindrar þessi takmörkun Úkraínu í að veita Rússum afgerandi högg og er þannig í raun að hjálpa Rússum?“ spyr hann síðan.

Hann bendir á að í upphafi stríðsins hafi Vesturlönd haft áhyggjur af að láta Úkraínu „sóknarvopn“ í té vegna hræðslu við venjulega orðræðu Pútíns um stigmögnun átakanna. Samt sem áður hafi rússneska hernum ekki tekist að ná yfirburðum yfir úkraínska hernum og eigi nú í vök að verjast.

„Það síðasta sem Kremlin þarf á að halda er að átökin stigmagnist því þá munu veikleikar rússneska hersins koma í ljós sem aldrei áður,“ segir hann.

Hann bendir síðan á að á síðustu 16 mánuðum hafi sjálfstraust Vesturlanda aukist og það hafi gert Úkraínumönnum kleift að reka rússneska innrásarliðið aftur á bak. Meðal þess sem Vesturlönd hafi sent Úkraínumönnum séu nútíma skriðdrekar, loftvarnarkerfi og langdrægar eldflaugar.

Hann segir að þrátt fyrir að Rússland sé kjarnorkuveldi og hafi hótað að beita kjarnorkuvopnum, þá sé ákaflega ólíklegt að Rússar beiti kjarnorkuvopnum nema Rússlandi sjálfu sé ógnað. Með því að Vesturlönd takmarki möguleika Úkraínumanna á beita vestrænum vopnum, séu þau óbeint að takmarka sóknarmöguleika Úkraínumanna á krítísku stigi í sókn þeirra.

„Með því að takmarka möguleika Úkraínumanna á að færa stríðið til Rússland, eiga Vesturlönd á hættu að styrkja Pútín og breyta gangi stríðsins Pútín í vil,“ segir hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“
Fréttir
Í gær

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“
Fréttir
Í gær

Útlit fyrir bongó um helgina

Útlit fyrir bongó um helgina
Fréttir
Í gær

Guðmundur í Brim sakaður um billegan orðhengilshátt í Bítinu í morgun – „Það á enginn fiskinn í sjónum“

Guðmundur í Brim sakaður um billegan orðhengilshátt í Bítinu í morgun – „Það á enginn fiskinn í sjónum“
Fréttir
Í gær

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti