fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Vantraust Pútíns í garð hershöfðingja sinna veikir herinn

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 26. júlí 2023 07:00

Surovikin, hershöfðingi, og Pútín.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalmarkmið Vladímír Pútíns er að halda völdum og hann metur tryggð meira en hæfni.

Þetta kemur fram í grein sem Sean Bell, hernaðarsérfræðingur, ritaði nýlega á vef Sky News.

Þar segir hann að gagnsókn Úkraínumanna hafi ekki gengið eins vel og vænst var og hafi þeim ekki enn tekist að brjótast í gegnum varnarlínur Rússa. En Rússar standa einnig frammi fyrir miklum vandræðum að hans mati.

Hann segir að Pútín eigi í vanda með að ná aftur tökum á stjórn rússneska hersins í kjölfar skammvinnrar uppreisnar Yevgeny Prigozhin.

Hann spyr síðan hvort yfirstandandi ólga meðal æðstu stjórnenda rússneska hersins sé hliðarbarátt við hlið grimmdarlegra bardaga á vígvellinum eða hvort spilaborg Pútíns sé að hrynja?

Hann segir að sannfærandi bardagageta sé blanda af búnaði og þjálfun en það sem sé talið mikilvægast sé getan til að „geta fengið fólk til að berjast“.

Þetta snúist um móral, gildi, heilindi og lögmæti til að tryggja að hermenn sýni af sér andlegt og móralskt hugrekki þegar þeir standa frammi fyrir lífshættu.

„Traust og sjálfstraust herforingja, hvort sem er á lægri stigum eða hjá þeim hæst settu, gerir yfirmönnum kleift að koma markmiðum sínum á framfæri, og hvetja undirmenn sína til að sýna frumkvæði, hugrekki og jafnvel fórna lífi sínu til að ná þessum markmiðum,“ segir hann og bætir síðan við að þetta sé ekki aðferð Rússa.

„Í rússneska hernum er engin valdefling, æðstu yfirmenn stjórna og hermenn gera það sem þeim er sagt,“ segir hann.

Hann segir að landgönguliðar séu álitnir mega missa sig, séu peð í hörðum bardaga, og ekkert svigrúm sé til að „túlka“ fyrirmæli því það gæti falið í sér hugsanlega réttlætingu á stjórnleysi sem er eitthvað sem yfirstjórn rússneska hersins óttist sífellt. „Þetta skapar óvild og fyrirlitningu á stjórnendum,“ segir hann.

Hann segir að í kjölfar skammvinnrar uppreisnar Prigozhin geti Pútín ekki vitað hvaða hershöfðingjum hann geti treyst og hverja hann eigi að óttast.

„Það mætti hafa reiknað með að Pútín myndi hreinsa til meðal æðstu herforingja sinna til að gera út af við alla ógn og sem skýr skilaboð til þeirra sem taka við af þeim. En hins vegar er aðalmarkmið hans að halda völdum og hann metur tryggð meira en hæfileika,“ skrifar hann.

Hann segir að það gæti bætt árangur rússneska hersins ef Pútín losar sig við Valery Gerasimov, æðsta hershöfðingja landsins, og Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, en það gæti falið í sér hættu á að óvinir komist nær Pútín.

„Sterkrar og áveiðinnar forystu er þörf ef Rússar ætla að ná árangri í Úkraínu. En þess í stað eru öll lög rússneska hersins sýkt af menningu sem byggist upp á grunsemdum og ótta, þetta nær jafnvel alla leið til Kremlar,“ segir hann einnig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“
Fréttir
Í gær

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár
Fréttir
Í gær

Alexios og Rafail fengu þunga dóma fyrir kókaíninnflutning til Íslands

Alexios og Rafail fengu þunga dóma fyrir kókaíninnflutning til Íslands
Fréttir
Í gær

Afhjúpa áróður á TikTok – „Svo aumt af SFS að geta ekki komið fram undir eigin nafni“

Afhjúpa áróður á TikTok – „Svo aumt af SFS að geta ekki komið fram undir eigin nafni“
Fréttir
Í gær

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta
Fréttir
Í gær

Þingmenn Samfylkingar vilja ekki mæta í þátt Stefáns Einar – Hann telur Þórð Snæ vera að hefna sín

Þingmenn Samfylkingar vilja ekki mæta í þátt Stefáns Einar – Hann telur Þórð Snæ vera að hefna sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gaseldavélar geti aukið hættu á krabbameini tvöfalt meira hjá börnum en fullorðnum

Gaseldavélar geti aukið hættu á krabbameini tvöfalt meira hjá börnum en fullorðnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leigubílstjóri skildi tvær konur eftir úti í hrauni í kolniðamyrkri – „Það er ekki hlaupið að því fyrir ferðamenn að leita réttar síns eftir svona“

Leigubílstjóri skildi tvær konur eftir úti í hrauni í kolniðamyrkri – „Það er ekki hlaupið að því fyrir ferðamenn að leita réttar síns eftir svona“