fbpx
Miðvikudagur 16.júlí 2025
Fréttir

Tengslin við Hagvang stöðvuðu ekki VR

Framkvæmdastjóri VR leiðbeindi yfirmanni eiginkonunnar – Umdeilt stjórnarkjör – „Mjög óheppilegt“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 2. febrúar 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, fékk ráðningarfyrirtækið Hagvang til að leggja mat á umsækjendur um sæti stéttarfélagsins í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV). Eiginkona Stefáns Sveinbjörnssonar, framkvæmdastjóra VR, starfar sem forstöðumaður hjá Hagvangi en hann sá um öll samskipti stéttarfélagsins við ráðningarfyrirtækið. Heimildir DV herma að kostnaður VR vegna matsins hlaupi á milljónum króna og að engin skrifleg beiðni um að Hagvangur tæki verkið að sér hafi verið send á fyrirtækið. Stjórnarmaður í VR segir „mjög óheppilegt“ að ráðningarfyrirtækið hafi séð um framkvæmd þess.

„Það hafði enginn hugmynd um tengslin fyrr en eftir á. Auðvitað er þetta mjög óheppileg tenging en mín reynsla er sú, miðað við pólitíkina sem er stunduð innan verkalýðshreyfingarinnar, að flest allir faglegir ferlar í kringum svona skipanir séu aðeins faglegir á yfirborðinu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR og umsækjandi um sæti í stjórn LV.

Stefán Sveinbjörnsson vísaði eins og Ólafía á lögmann VR þegar DV náði tali af honum.
Framkvæmdastjóri VR Stefán Sveinbjörnsson vísaði eins og Ólafía á lögmann VR þegar DV náði tali af honum.

Mynd: VR

Funduðu tvisvar

Alls sóttu 40 um sæti í stjórn LV, næststærsta lífeyrissjóðs landsins, fyrir hönd VR þegar stéttarfélagið auglýsti eftir fólki síðastliðið haust. VR tilnefnir fjóra í stjórn sjóðsins og við fyrri stjórnarkjör LV sá stjórn stéttarfélagsins um að velja eftir tillögum formanns þess. Í svari lögmanns VR við fyrirspurn DV, sem var upphaflega send Ólafíu rétt fyrir hádegi í gær, mánudag, segir að Stefán Sveinbjörnsson hafi ekki komið að ákvörðuninni um að kaupa þjónustu Hagvangs. Gögn sem DV hefur undir höndum sýna aftur á móti að Stefán sá alfarið um samskipti VR við ráðningarfyrirtækið og sendi starfsmanni þess meðal annars upplýsingar um hvað fælist í starfi stjórnarmanna í lífeyrissjóðum. Fundaði Stefán tvívegis með starfsmanni ráðningarfyrirtækisins og yfirmanni eiginkonu sinnar. Eiginkona Stefáns er Geirlaug Jóhannsdóttir og stýrir hún skrifstofu Hagvangs í Borgarnesi.

Hagvangur valdi á endanum sextán umsækjendur sem voru síðan lagðir fyrir stjórn VR. Hún valdi í kjölfarið tvo fulltrúa en rúmlega 100 meðlimir trúnaðarráðs VR kusu hina tvo úr hópi þeirra 14 sem eftir voru.

Ragnar Þór Ingólfsson segir óheppilegt að VR hafi leitað til Hagvangs. Hann sótti sjálfur um sæti í stjórn LV.
Stjórnarmaður VR Ragnar Þór Ingólfsson segir óheppilegt að VR hafi leitað til Hagvangs. Hann sótti sjálfur um sæti í stjórn LV.

„Það var áður ákveðið að ef það kæmu inn fleiri umsækjendur en 16 væri fenginn óháður aðili til að velja þá úr sextán manna hópi. Ég veit ekki til þess að það sé komin fyrirspurn um kostnað VR við þetta ferli en ég geri fastlega ráð fyrir að það verði gert,“ segir Ragnar.

Öllum skipt út

Enginn fjögurra fulltrúa VR í stjórn LV náði kjöri í trúnaðarráði stéttarfélagsins eftir að stjórn VR hafði valið tvo aðra umsækjendur. Þeir fulltrúar VR sem koma til með að sitja í stjórn lífeyrissjóðsins fyrir kjörtímabilið 2016 til 2019 hafa því aldrei áður setið í henni. DV greindi á föstudag frá lögfræðiáliti sem Ásta Rut Jónasdóttir, formaður LV og fulltrúi í stjórn hans fyrir hönd VR, lét gera en í því kemur fram að umsækjendur sem sátu sjálfir í trúnaðarráðinu hafi ekki fengið að taka þátt í kosningunni á helmingi fulltrúa VR. Fór hún fram á að kosningin yrði ógilt og endurtekin. Stjórn stéttarfélagsins hafnaði því á fundi sínum, á sunnudag, sem stóð yfir í rúma tvo klukkutíma.

Ásta Rut, Birgir Már Guðmundsson og Fríður Birna Stefánsdóttir, þrír af fjórum fulltrúum VR, fengu því ekki að greiða atkvæði í kosningu trúnaðarráðsins sem fór fram þriðjudagskvöldið fyrir viku. Einungis munaði einu atkvæði á Ástu og Auði Árnadóttur, sem náði kjöri í aðalstjórn LV. Áréttaði Ásta í yfirlýsingu fyrir helgi að ekki væri hægt að taka kosningarétt af fólki nema með skýrum lagaheimildum. Fjórði fulltrúinn sem hættir í stjórn LV á næstu dögum, Páll Örn Líndal, komst ekki í gegnum hæfnismat Hagvangs þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið (FME) hefði áður metið hann hæfan til stjórnarsetu.

Mikil uppstokkun

Fjórir fulltrúar eru tilnefndir í stjórn LV af samtökum atvinnurekenda. Úlfar Steindórsson, forstjóri og eigandi Toyota á Íslandi, mun koma nýr inn stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fyrir kjörtímabilið 2016 til 2019. Auk Úlfars þá er Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs N1, tilnefnd af Félagi atvinnurekenda og Benedikt K. Kristjánsson, sölu- og þjónustufulltrúi, tilnefndur af Kaupmannasamtökum Íslands, samkvæmt heimildum DV. Áður hefur verið greint frá því að Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins (SI), muni taka sæti í stjórn lífeyrissjóðs sem fulltrúi þeirra í stað Helga Magnússonar. Benedikt er sá eini sem hefur áður setið í stjórn LV.

Mikil uppstokkun verður því á stjórn sjóðsins fyrir næsta þriggja ára kjörtímabil en fyrir liggur að enginn af fulltrúum VR, sem eru einnig fjórir talsins, hafa áður átt sæti í stjórn LV. Fulltrúar VR í stjórninni, eins og sagt var frá í DV í síðustu viku, verða þau Auður Árnadóttir, fjármálastjóri hjá Hörpu, Ólafur Reimar Gunnarsson, stjórnarmaður í VR, Magnús Ragnar Guðmundsson, sem starfar hjá Össuri, og Ína Björk Hannesdóttir, rekstrarstjóri hjá ReMake.

„Ég er að byrja áttunda ár mitt í stjórn VR og maður er búinn að sjá ýmislegt og hrossakaupin í kringum stjórnarsetu í lífeyrissjóðinum hafa verið alveg ótrúleg, vægast sagt. Það er svolítið merkilegt þetta upphlaup þessara stjórnarmanna sem koma fram núna og urðu undir í atkvæðagreiðslu sem var í sjálfu sér mun lýðræðislegri en hún hefur nokkurn tímann verið. Þó að pólitíkin sé alltaf jafn sterk í skipun þessara sæta þá er grátbroslegt að sjá þetta fólk vera með upphlaup núna miðað við hvað það hefur á samviskunni. Þetta er það skásta sem ég hef séð hjá VR varðandi val hjá stjórnarmönnum,“ segir Ragnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sigurður leitar að manninum sem bankaði upp á hjá öldruðum frænda hans í Blesugróf – Heitir 100 þúsund krónum fyrir upplýsingar

Sigurður leitar að manninum sem bankaði upp á hjá öldruðum frænda hans í Blesugróf – Heitir 100 þúsund krónum fyrir upplýsingar
Fréttir
Í gær

Ásthildur Lóa – Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG hafi farið í einu og öllu eftir kröfum stórútgerðarinnar

Ásthildur Lóa – Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG hafi farið í einu og öllu eftir kröfum stórútgerðarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum kærasti Öldu reyndi að ræna henni – „Ég henti mér út úr bíln­um“

Fyrrum kærasti Öldu reyndi að ræna henni – „Ég henti mér út úr bíln­um“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir tafir á Hvammsvirkjun ekkert hafa með náttúruvernd að gera heldur lagaflækjur og mistök

Segir tafir á Hvammsvirkjun ekkert hafa með náttúruvernd að gera heldur lagaflækjur og mistök