fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Eyjan

Jón Brynjar nýr forstöðumaður fjármála hjá Sýn

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 5. maí 2023 13:47

Jón Brynjar Ólafsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Brynj­ar Ólafs­son hefur verið ráðinn til Sýnar og mun leiða fjármál sem er deild á sviði fjármála og stefnumótunar. Deildin nær yfir uppgjör og reikningsskil, hagdeild og innheimtu og mun Jón Brynjar vera forstöðumaður þeirrar deildar, eins og segir í tilkynningu.

„Sýn er spennandi þjónustufyrirtæki með öfluga fjarskipta- og fjölmiðlaþjónustu. Sóknartækifæri Sýnar eru fjölmörg og það verður mjög gaman að taka þátt í að skapa framtíðina með þeim flotta hóp sem þar starfar,“ segir Jón Brynjar Ólafsson.

„Við erum mjög ánægð með að fá jafn reynslu mikinn aðila og Jón Brynjar til liðs við Sýn. Þekking Jóns Brynjars mun nýtast Sýn vel á þeirri breytingarvegferð sem félagið er á og bjóðum við hann velkominn til starfa“, segir Kristín Friðgeirsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og stefnumótunar hjá Sýn.

Jón Brynj­ar starfaði áður hjá Advania Ísland ehf. sem fjármálastjóri og þar áður sem forstöðumaður hagdeildar. Hann er með meist­ara­gráðu í fjár­mál­um og stefnu­mót­andi stjórn­un frá Copen­hagen Bus­iness School og hef­ur sér­hæft sig í Beyond Budget­ing aðferðafræðinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir hættulega galla vera á örorkufrumvarpinu – „Í ákveðnum tilvikum munu árstekjur öryrkja lækka“

Segir hættulega galla vera á örorkufrumvarpinu – „Í ákveðnum tilvikum munu árstekjur öryrkja lækka“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Uppnám varð í breska þinginu skömmu áður en fyrirspurnatími forsætisráðherra hófst

Uppnám varð í breska þinginu skömmu áður en fyrirspurnatími forsætisráðherra hófst
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði