fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Dularfullir eldsvoðar hvað eftir annað í Rússlandi – Er skýringuna á þeim að finna í þessum svarta kassa?

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 19. apríl 2023 04:15

Kyrylo Budanov, yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar. Mynd:Úkraínska varnarmálaráðuneytið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stórbrunum fjölgaði mikið í Rússlandi á síðasta ári miðað við árin á undan. Þessi þróun hefur haldið áfram á þessu ári. Rússnesk yfirvöld segja að ástæðurnar fyrir eldsvoðunum séu óheppni og reykingar.

Eftir því sem greiningarfyrirtækið Molfar, sem fylgist með stórbrunum í Rússlandi, urðu 75 stórbrunar þar í landi í mars á þessu ári. Til samanburðar voru aðeins 21 stórbrunar í Rússlandi í mars 2022.

Molfars segir að á síðustu mánuðum hafi verið greinileg þróun hvað varðar fjölda stórbruna þrátt fyrir að lítið sé fjallað um þá í rússneskum fjölmiðlum.

„Það virðist sem rússneskir fjölmiðlar fjalli ekki svo mikið um þessa atburði eins og áður og þegar þeir gera það, þá sleppa þeir mikilvægum atriðum eða draga úr tjóninu,“ sagði Daria Verbytska, sérfræðingur hjá Molfar, í samtali við Forbes Magazine.

Á síðasta árið urðu tæplega 25% fleiri stórbrunar en 2021. Þetta kemur fram í tölum frá rússneskum yfirvöldum. Eftir því sem segir í ársskýrslu brunamálayfirvalda þá eru reykingar, ógætileg meðferð elds og strákapör helstu ástæður eldsvoða í Rússlandi. Íkveikjur eru í fjórða sæti og segja yfirvöld að íkveikjum hafi fækkað á síðasta ári miðað við 2021.

Eru Rússar í alvöru orðnir óvarkárari en áður þegar þeir reykja eða býr eitthvað annað að baki öllum þessum eldsvoðum? Þessu hefur Molfar reynt að svara.

Sérfræðingar Molfar telja að hugsanlega séu skemmdarverk, sem séu framin af tveimur ólíkum hópum, stór ástæða fyrir þessari aukningu eldsvoða. Annar hópurinn er rússneska andspyrnuhreyfing sem kveikir hugsanlega í byggingum til að veikja stjórnina í Kreml. Hinn hópurinn er hugsanlega úkraínskir sérsveitarmenn eða bara langdrægar árásir úkraínska hersins.

Úkraínsk yfirvöld neita því að úkraínskir hermenn séu að störfum í Rússlandi en í desember sagði Volodymyr Zhemtjugov, leiðtogi Úkraínumanna á hernumdum svæðum í austurhluta Úkraínu, að hann vissi um aðgerðir úkraínskra hermanna í Rússlandi. Hann sagði að úkraínskir hermenn hefðu þó varla ráðist á verslunarmiðstöðvar, skotmörk þeirra væru hernaðarlegs eðlis. Sú staðreynd að verslunarmiðstöðvar og lagerbyggingar brenni í Rússlandi megi líklega rekja til rússneskrar andspyrnuhreyfingar.

En það er þriðji möguleiki í stöðunni. Molfar segir að Úkraínumenn séu með háleynilegt verkefni í gangi sem heiti „Svarti kassinn“ og hugsanlega sé hægt að finna skýringuna á öllum þessum eldsvoðum þar. Úkraínski herinn hefur skýrt frá verkefninu á heimasíðu sinni.

Úkraínumenn segja að verkefnið sé fjármagnað með hópfjármögnun samtakanna Come Back Alive Foundation sem hafa að sögn safnað einni milljón dollara til verkefnisins. Í tilkynningu frá samtökunum í október sögðust þau hafa keypt og afhent Úkraínumönnum útbúnað sem gæti skaðað sóknargetu rússneska hersins. Kyrylo Budanov, yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar, sagði við það tilefni að ekki væri hægt að skýra frá smáatriðum varðandi samvinnuna en árangur þess myndi án efa sjást á vígvellinum. „Samkvæmt útreikningum okkar hefur verkefnið, sem við köllum „Svarta kassann“, valdið tjóni upp á milljónir dollara í Rússlandi,“ sagði hann.

Sérfræðingar Molfar segja tengsl á milli þess hvenær „Kassinn“ var tekinn í notkun og skyndilegrar fjölgunar eldsvoða í Rússlandi.

En þá er spurningin auðvitað: Hvað er í kassanum?

Ekki er vitað, opinberlega, hvað er í honum en Come Back Alive Foundation safnar núna fyrir nethernaði gegn Rússlandi og kannski er svarið við skammhlaupum og því um líku, í tengslum við rússnesku eldsvoðana, að finna þar. Samtökin safna einnig peningum fyrir drónum, fjarskiptakerfum og herökutækjum svo það er ekki víst að kassinn sé vopn til að nota við netárásir.

Það er því ekki vitað opinberlega hvað er í kassanum en ljóst er að stórbrunum hefur fjölgað mikið í Rússlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum
Elmar fékk þungan dóm
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ólafur varar landsmenn við – „Mikilvægt að fólk sé ekki að vaða með kámugar krumlur í nammiskálar og mat”

Ólafur varar landsmenn við – „Mikilvægt að fólk sé ekki að vaða með kámugar krumlur í nammiskálar og mat”
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Súlunesmálið: Leituðu til miðils og tónlistarmanns til að sefa ofsa Margrétar

Súlunesmálið: Leituðu til miðils og tónlistarmanns til að sefa ofsa Margrétar
Fréttir
Í gær

Dánarbú blindrar og fjölfatlaðrar konu þurfti að borga Tryggingastofnun – Hafði ekki hugmynd um skuldina

Dánarbú blindrar og fjölfatlaðrar konu þurfti að borga Tryggingastofnun – Hafði ekki hugmynd um skuldina
Fréttir
Í gær

Súlunesmálið: Margrét ekki svipt föðurarfinum – Hundruð handskrifaðra skilaboða hennar til foreldranna vekja óhug 

Súlunesmálið: Margrét ekki svipt föðurarfinum – Hundruð handskrifaðra skilaboða hennar til foreldranna vekja óhug 
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Metfjöldi sendinga á afsláttardögum

Metfjöldi sendinga á afsláttardögum