Messi er sterklega orðaður við endurkomu til Barcelona þar sem hann gerði garðinn frægan sem leikmaður.
Messi vann HM með Argentínu í fyrra og gerir sér vonir um að spila á næsta móti sem fer fram eftir þrjú ár.
Kempes er með svarið og telur að Messi þurfi að spila áfram hjá langbesta liði Frakklands til að eiga möguleika á að vera valinn.
Messi verður 36 ára gamall á árinu og myndi spila á því móti 39 ára gamall.
,,Ef hann vill spila á næsta HM þá þarf hann að vera áfram í Frakklandi,“ sagði Kampos um stöðuna.
,,Eftir þrjú ár þá er hann í fullkomnri stöðu hjá PSG. Við fáum líka að sjá hann í undankeppninni, við sjáum hvernig hann eldist.“
,,Það er eitt sem Messi er betri en aðrir í; hann hleypur þegar hann þarf að hlaupa en eyðir ekki orku.“
,,Hann verður ekki sami leikmaður og hann var 2022 en með þennan vinstri fót, hann getur skorað mörk hvar sem er.“