fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Vímaður ökumaður ók á ljósastaur – Nágrannaerjur vegna snjómoksturs og bifreiðalagningar

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 19. desember 2022 05:34

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á níunda tímanum í gærkvöldi var bifreið ekið á ljósastaur í Miðborginni. Hún festist og komst ökumaðurinn því ekki á brott. Hann var handtekinn á vettvangi því hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis, fíkniefna og lyfja. Hann var vistaður í fangageymslu.

Í Hafnarfirði kom til deilna á milli nágranna vegna snjómoksturs og bifreiðalagningar. Þar höfðu hjón mokað snjó úr tveimur bifreiðastæðum við fjölbýlishús fyrir einkabíla sína. Þau þurftu síðan að nota aðra bifreiðina en þegar þau komu aftur var nágranni þeirra búinn að leggja í stæðið sem þau höfðu mokað úr. Nágranninn var ekki tilbúinn til að færa bifreið sína eins og þau vildu. Var snjó þá mokað að bifreið hans þannig að ekki var hægt að komast inn í hana. Í kjölfarið ógnaði nágranninn hjónun með skóflu.

Einn ökumaður var handtekinn í Miðborginni í nótt grunaður um ölvun við akstur.

Í Kópavogi var bakkað á bensíndælu á ellefta tímanum í gærkvöldi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Móðir ófeðraðs barns forvitnaðist um réttindi sín en fékk rangar upplýsingar – Uppgötvaði hið rétta 14 árum síðar

Móðir ófeðraðs barns forvitnaðist um réttindi sín en fékk rangar upplýsingar – Uppgötvaði hið rétta 14 árum síðar
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Lenti í óvæntu veseni eftir setu í stjórn foreldrafélags með háttsettum einstaklingi

Lenti í óvæntu veseni eftir setu í stjórn foreldrafélags með háttsettum einstaklingi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Verðkönnun ASÍ á algengum jólavörum: Afar mikill munur á ýmsum verðum milli verslanna og hvaða pakkningar eru valdar

Verðkönnun ASÍ á algengum jólavörum: Afar mikill munur á ýmsum verðum milli verslanna og hvaða pakkningar eru valdar
Fréttir
Í gær

Ólafur varar landsmenn við – „Mikilvægt að fólk sé ekki að vaða með kámugar krumlur í nammiskálar og mat”

Ólafur varar landsmenn við – „Mikilvægt að fólk sé ekki að vaða með kámugar krumlur í nammiskálar og mat”