fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Fréttir

Þorpið kaupir JL húsið

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 20. september 2022 13:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorpið vistfélag hefur keypt JL húsið við Hringbraut 121 af Myndlistaskólanum í Reykjavík og Íslandsbanka. Kaupin eru gerð með fyrirvara um fjármögnun og áreiðanleikakönnun. Greint er frá kaupunum í tilkynningu frá Þorpinu.

Þá er farið yfir það í tilkynningunni hverjar ætlanir Þorpsins eru með húsið. „Þorpið ætlar að breyta efri hæðum hússins í fjölbreytilegar og vandaðar miðborgaríbúðir en fyrir liggur jákvæð afstaða skipulagsfulltrúa til þess og drög að uppbyggingarsamningi milli Þorpsins og Reykjavíkurborgar um verkefnið,“ segir í tilkynningunni.

„Yrki arkitektar hafa gert frumtillögur að íbúðum í húsinu þar sem það er fært nær upprunalegu útliti. Þær tillögur gera ráð fyrir íbúðum sem eru frá 50 til rúmlega 100m² að stærð. Einnig er gert ráð fyrir að breyta bílastæðum sunnan við húsið í skjólgott grænt svæði sem mun nýtast bæði íbúum og Vesturbænum í heild. Húsið að garðinum mun stallast upp þannig að allar íbúðir hafa lítinn garð eða pall í suður. Norðan megin hússins er gert ráð fyrir svölum með einstöku útsýni.“

Húsið var byggt árið 1948 af Vikurfélaginu hf. sem vörugeymsla og skrifstofuhús. Vikurfélagið varð síðar Jón Loftsson hf. sem húsið var síðar kennt við. Arkitekt hússins er Sigmundur Halldórsson og er húsið í síð-funkis stíl.

Þorpið vistfélag segist vilja vera leiðandi í þróun íbúða með áherslu á hagkvæmni, umhverfi og samfélag. Félagið vill leggja sitt af mörkum til jákvæðrar þróunar samfélagsins og skapa með því bæði samfélagslegan arð og fjárhagslegan. Þá vill félagið nýta þekkingu sína og reynslu til að tengja saman ólíka aðila og vera eftirsóknarverður samstarfsaðili ríkis, borgar og fjárfesta við uppbyggingu íbúða í takt við þarfir og áætlanir um stóraukið framboð íbúða á næstu árum.

„Þorpið hefur á síðustu þremur árum vaxið í það að verða einn stærsti einstaki uppbyggingaraðili á íbúðarhúsnæði í Reykjavík en félagið hefur í eignasafni sínu í dag um 1.500 íbúðir í byggingu, hönnun, skipulagi og þróun eða alls um 120.000m² ofanjarðar. Lang stærsta verkefnið er á Ártúnshöfða þar sem félagið á byggingarrétt að um 80.000m² ofanjarðar. Þar er gert ráð fyrir að framkvæmdir við fyrstu 170 íbúðirnar hefjist í vor.“

Nú horfir Þorpið til þess að vinna að umbreytingarverkefnum á völdum þéttingarreitum miðsvæðis í borginni og er JL húsið fyrsta verkefni félagsins af því tagi. Samhliða því vinnur félagið að uppbyggingu á Ártúnshöfða.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við reitinn hefjist innan tveggja ára en að félagið leigi út húsið þangað til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Stofna nýtt hátæknifélag

Stofna nýtt hátæknifélag
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Strætó stöðvar allan akstur á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni

Strætó stöðvar allan akstur á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Morgunblaðið stendur fast á sínu: „Heimildarmennirnir eru trúverðugir“

Morgunblaðið stendur fast á sínu: „Heimildarmennirnir eru trúverðugir“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

„Kirkjan þarf til dæmis að geta losað sig við mig ef að ég myndi fara yfir mörk hjá einhverjum“

„Kirkjan þarf til dæmis að geta losað sig við mig ef að ég myndi fara yfir mörk hjá einhverjum“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Forsíðufrétt Morgunblaðsins um árásina á Höfðatorgi vekur hörð viðbrögð – „Kjaftasaga, hreinn og klár uppspuni“

Forsíðufrétt Morgunblaðsins um árásina á Höfðatorgi vekur hörð viðbrögð – „Kjaftasaga, hreinn og klár uppspuni“
Fréttir
Í gær

Brak úr Villi Birni líklega komið í ljós – Feðgum bjargað eftir að báturinn hvolfdi

Brak úr Villi Birni líklega komið í ljós – Feðgum bjargað eftir að báturinn hvolfdi
Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“