fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Frans páfi sendi Guðna Th. og íslensku þjóðinni kveðju úr háloftunum – „Ég sendi kveðjur og heillaóskir til yðar“

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 24. júlí 2022 12:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frans páfi lagði í postullega utanlandsferð til Kanada frá Róm klukkan 09:16 að staðartíma í morgun. Á leið sinni til Kanada ákvað páfinn að senda kveðju til þeirra landa sem hann flaug yfir. Samkvæmt Vatican News er páfinn búinn að senda kveðju til Ítalíu, Sviss, Frakklands, Bretlands og Íslands úr flugvélinni.

Kveðjurnar voru allar nokkuð svipaðar, hann blessaði þjóðir landanna sem hann flaug yfir og sendi kveðjur á leiðtoga þeirra. „Ég sendi kærar kveðjur til yðar og þjóðar þinnar, saman með bænum til guðs almáttugs og ég bið hann um að blessa ykkur öll með sameiningu og frið,“ sagði páfinn til að mynda í kveðjunni til Sviss. Hann sendi forsetum Ítalíu, Sviss, Frakklands og Íslands kveðju en kveðjan til Bretlands var stíluð á Elísabetu drottningu.

Kveðjan til Íslands var því stíluð á Guðna Th. Jóhannesson. „Ég sendi kveðjur og heillaóskir til yðar og þjóðar þinnar er ég flýg yfir Ísland á leið minni til Kanada, með bænum um að guð muni blessa alla þjóðina með gjöfum sínum, æðruleysi og gleði.“

Áætlað er að páfinn lendi rétt fyrir hádegi í Kanada en þar munu þau Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, og Salma Lakhani, aðstoðarríkisstjóri Alberta, taka á móti honum. Eftir það mun páfinn taka restina af deginum í að hvíla sig en fyrstu opinberu heimsóknir hans í Kanada hefjast á morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ný könnun: Meirihluti ætlar að segja Já

Ný könnun: Meirihluti ætlar að segja Já
Fréttir
Í gær

Krefja Matvælastofnun um svör vegna umsóknar um leyfi til umfangsmikilla dýratilrauna

Krefja Matvælastofnun um svör vegna umsóknar um leyfi til umfangsmikilla dýratilrauna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðni Már svaraði símtali konu: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót“

Guðni Már svaraði símtali konu: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sævar biður fólk um að anda með nefinu: Brottfararstöðvar hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar

Sævar biður fólk um að anda með nefinu: Brottfararstöðvar hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan á Íslandi tók þátt í að uppræta peningaþvætti á iðnaðarskala í alþjóðlegri lögregluaðgerð

Lögreglan á Íslandi tók þátt í að uppræta peningaþvætti á iðnaðarskala í alþjóðlegri lögregluaðgerð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð