Einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna.
Í Kópavogi var ungmenni, fætt 2008, nefbrotið síðdegis í gær af jafnaldra sínum. Árásarþolinn var fluttur á bráðdeild til aðhlynningar. Lögreglan fór að heimili árásaraðilans og ræddi við móður hans. Barnaverndaryfirvöldum var gert viðvart um málið.