fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
433Sport

Breska ríkisstjórnin léttir enn frekar á hömlunum – Chelsea fær mikilvægar tekjur

Helgi Sigurðsson
Sunnudaginn 13. mars 2022 10:05

Frá Stamford Bridge.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska ríkisstjórnin hefur létt frekar á þeim takmörkunum sem enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea voru settar í síðustu viku. The Sun fjallaði um málið í gærkvöldi.

Eins og kunnugt er orðið voru eigur Roman Abramovich, eiganda Chelsea, frystar í síðustu viku vegna tengsla hans við Vladimir Putin, Rússlandsforseta.

Í kjölfarið voru félaginu settar ýmsar hömlur.

Abramovich er nú ekki lengur stjórnandi félagsins en það var stjórn ensku úrvalsdeildarinnar sem tók þá ákvörðun í gær. Í kjölfarið var létt á einhverjum af þeim hömlum sem Chelsea höfðu verið settar. Breska ríkisstjórnin ákvað að leyfa Chelsea að eyða 900 þúsund pundum í að halda heimaleiki í stað 500 þúsund eins og hafði verið ákveðið áður.

Nú hefur ríkisstjórnin ákveðið að leyfa Chelsea að nota sjónvarpstekjur og verðlaunafé frá ensku úrvalsdeildinni og UEFA til að nota við rekstur félagsins. Það ætti því ekki að vera mikil hætta á því að Chelsea fari í greiðslustöðvun neitt á næstunni.

Chelsea mun fá allt að 35 milljónir punda í sjónvarpstekjur það sem eftir er af þessari leiktíð. Þá fær félagið 39 milljónir punda ef það heldur þriðja sætinu í ensku úrvalsdeildinni. Takist liðinu að fara alla leið í Meistaradeild Evrópu og verja titil sinn fær það svo 36 milljónir punda.

Abramovich hefur gefið grænt ljós á að félagið verði selt. Hann mun ekkert hagnast á sölunni. Félagið mun sko

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Síðasti séns Manchester United er gegn meisturunum – Enda í áttunda sæti

Síðasti séns Manchester United er gegn meisturunum – Enda í áttunda sæti
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sjáðu þegar Jóhann Berg var kvaddur í dag – Búinn að spila sinn síðasta leik

Sjáðu þegar Jóhann Berg var kvaddur í dag – Búinn að spila sinn síðasta leik
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Yfirgefur Chelsea og sendir skilaboð á unga leikmenn liðsins – ,,Þeir þurfa að gera meira“

Yfirgefur Chelsea og sendir skilaboð á unga leikmenn liðsins – ,,Þeir þurfa að gera meira“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Tuchel staðfestir að viðræður – ,,Náðum ekki samkomulagi“

Tuchel staðfestir að viðræður – ,,Náðum ekki samkomulagi“
433Sport
Í gær

Guardiola staðfestir að hann verði áfram

Guardiola staðfestir að hann verði áfram
433Sport
Í gær

Auðunn Blöndal lýsir besta augnablikinu fyrir utan fæðingu barna sinna – „Eitt það erfiðasta sem ég hef horft á, það var svo mikið af tilfinningum“

Auðunn Blöndal lýsir besta augnablikinu fyrir utan fæðingu barna sinna – „Eitt það erfiðasta sem ég hef horft á, það var svo mikið af tilfinningum“