fbpx
Miðvikudagur 24.desember 2025
Fókus

Ástfangin í tæpa öld – ,,Hélt ég myndi missa vitið án hennar“

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Fimmtudaginn 17. mars 2022 22:14

Helen og Maurice Kay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flesta dreymir um ást og rómantík sem þó er ekki auðfundin. Og þó hún finnist er það engin ávísun á að hún haldist, enda lýkur tæplega fjörutíu prósentum hjónabanda á Íslandi með skilnaði. Aftur á móti finnast enn sögur sem eru til þess fallnar að halda í trúna á ástina eins og sjá má á eftirfarandi viðtölum við hjón sem náðu að vera gift í yfir 80 ár.

Gáfum þessi ekki viku

Helen og Maurice Kay sögðu nauðsynlegt að hlusta hvort á annað.

Maurice og Helen Kay gengu í hjónaband árið 1933 og voru gift í tæp 84 ár. Aðspurð sagðist Helen aðallega hafa heillast af því að Maurice átti bíl, sem var sjaldséð á þessum árum. Maurice sagðist ekki hafa gefið sambandinu viku á sínum tíma, hvað þá yfir 80 ár, en þau hefðu lært að hlusta hvort á annað, gefa eftir og gera ekki of miklar kröfur. Maurice lést árið 2018 og að sögn dóttur þeirra var það Helen afar erfitt. ,,Henni líður eins og hún hafi misst útlim“.

Ann og John Betar voru á því að æskilegra væri að leyfa eiginkonunni að ráða.

 

Eiginkonan ræður

John og Ann Betar létust með 7 mánaða millibili árið 2019, John var 107 ára og Ann var 104. Þau höfðu gerið gift í 86 ár og eignast 5 börn, þar af tvö sem létust í hárri elli á undan foreldum sínum. Þau sögðu lykilinn vera vináttu, þolinmæði og skilning og að vera sáttur við sitt hlutskipti í lífinu.,,Og að leyfa eiginkonunni alltaf að ráða“ sagði John í viðtali rétt fyrir andlát sitt.

Samveran lykilatriði

Ralph og Dorothy Kohler sögðu lykilinn vera samveru.

Ralph og Dorothy Kohler voru 17 og 18 ára þegar þau reyndu fyrst að gifta sig en Dorothy hafði ekki aldur til. Þau gáfust ekki upp og löbbuðu á milli þar til þau fengu prest til að blessa hjónabandið. Dorothy lést í desember síðastliðinum, 102 ára gömul, og Ralph fylgdi henni eftir í upphafi þessa árs, 104 ára. Þau héldu því ávallt fram að lykillinn að góðu hjónabandi væri samvera og skilningur. Þau höfðu gjörólík áhugamál; Ralph var afar áhugsamur um skotfimi en Dorothy var heilluð af samkvæmisdönsum. Saman unnu þau aftur á móti hundruð verðlauna fyrir skotfimi og samkvæmisdansa meðan á hjónabandi þeirra stóð.

Hélt ég myndi missa vitið

Zelmyra og Herbert Fishcher tóku allar ákvarðanir í sameiningu.

Herbert og Zelmyra Fishcher gengu í hjónaband 1924. Á Valentínusdag árið 2011 opnuðu þau fyrir spurningar um hjónabandið á Twitter. Herbert sagði þar erfiðasta tíma lífs síns hafa verið þá tvo mánuði sem Zelmyra var á sjúkrahúsi þegar hún gekk með þeirra fimmta barn. ,,Ég hélt ég myndi missa vitið.  Ég get ekki verið án hennar, ég kann það ekki“. Þau sögðu ekkert leyndarmál að baki löngu hjónabandi, þau hefðu einfaldlega alltaf tekið ákvarðanir sem væru þeim báðum og börnum þeirra fyrir bestu. Herbert féll frá 105 ára að aldri árið 2011 og Zelmyra fylgdi honum eftir tveimur árum síðar, einnig 105 ára.

Karam og Kartari Chand rifust aldrei í 90 ár.

Reynum að njóta lífsins

Karam og Kartari Chand voru búin að vera gift í 90 ár þegar bresku blöðin bönkuðu upp á og kröfðust svara um lykilinn að langlífi hjónabandsins. Karam taldi það af og frá fréttaefni. ,,Við þökkum hvern dag og reynum að njóta hans eins og við getum. Við höfum engan áhuga á að slá einhver met, okkur líður vel saman, hefur alltaf liðið vel saman og þangað til við verðum kölluð yfir, ætlum við að halda áfram að láta okkur líða vel saman. Þetta snýst allt um fjölskylduna og virðingu hvort fyrir öðru“. Karam féll frá 110 ára að aldri árið 2016 og sammæltust börn þeirra um að foreldrar þeirra hefðu aldrei hækkað róminn hvort við annað svo þau vissu til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva heimsótti ömmu sína á fæðingardeildina – „Ætli það sé ekki svolítið spes“

Eva heimsótti ömmu sína á fæðingardeildina – „Ætli það sé ekki svolítið spes“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jólagestir féllu misvel í kramið hjá áhorfendum – „Langar mest að labba út“

Jólagestir féllu misvel í kramið hjá áhorfendum – „Langar mest að labba út“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Reynir að tortíma mannkyninu

Reynir að tortíma mannkyninu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Unnur Óla frumsýndi nýjan kærasta á Vitringunum 3

Unnur Óla frumsýndi nýjan kærasta á Vitringunum 3
Fókus
Fyrir 4 dögum

Könnun: Hvað ætlarðu að hafa í jólamatinn?

Könnun: Hvað ætlarðu að hafa í jólamatinn?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn

Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Simmi Vill búinn í áfengismeðferð – Svona lýsir hann upplifuninni

Simmi Vill búinn í áfengismeðferð – Svona lýsir hann upplifuninni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Konan í Coldplay-hneykslinu rýfur loks þögnina – Lífið breyttist í algjöra martröð

Konan í Coldplay-hneykslinu rýfur loks þögnina – Lífið breyttist í algjöra martröð