Fanndís Friðriksdóttir, landsliðskona Íslands í knattspyrnu, óttast að krossband í hné sé slitið. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Ef krossbandið er slitið er ljóst að Fanndís nær ekki Evrópumótinu með íslenska landsliðinu næsta sumar. Þá er tímabilið með Val svo gott sem úr sögunni.
Fanndís fer í nánari skoðun á þriðjudag og heldur enn í smá von. „Ég missti af stórum hluta þessa árs út af barneign, ég var að komast í form og var byrjuð að elska það að mæta á æfingar aftur. Það er allt næsta ár í húfi. Ég lifi bara í voninni að þetta sé liðþófi frekar en krossband,“ segir Fanndís við Fréttablaðið.
Fanndís hefur spilað 109 landsleiki fyrir Ísland og verið algjör lykilmaður í mögnuðum árangri kvennalandsliðsins síðustu ár.