Andri Lucas Guðjohnsen skaust upp á stjörnuhimininn í gær þegar hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Ísland. Fjölmiðlar út um allan heim skrifa nú um þennan 19 ára Íslending.
Sagan er í raun ótrúleg og vekur hún athygli. Arnór Guðjohnsen, afi Andra byrjaði á að skora fyrir landsliðið, síðan fylgdi faðir hans Eiður Smári og nú var komið að Andra Lucas. Ekki er ólíklegt að eldri bróðir hans, Sveinn Aron Guðjohnsen skori fyrir landsliðið á næstu mánuðum.
„Sonur, pabbi og afi. Nú hafa allir skorað,“ segir í fyrirsögn Expressen í Svíþjóð um málið.
Andri Lucas gerði jöfnunarmark Íslands í 2-2 jafntefli gegn Norður-Makedóníu í undankeppni Heimsmeistaramótsins í gær. Ekkert gekk upp hjá íslenska liðinu lengi vel í gær en á síðasta stundarfjóðrungi leiksins tókst þeim að breyta 0-2 stöðu í jafntefli.
,,Þetta var æðislegt, að vera partur af þessu. Auðvitað var þetta ekki okkar besti leikur. Sloppy fyrri hálfleikur en hægt og rólega náum við að koma okkur inn i þetta í seinni hálfleik. Þeir sem koma inn á, við vorum klárir í slaginn,“ sagði Andri við RÚV eftir leik.
,,Að gera þetta heima á Laugardalsvellinum, þetta er æðisleg tilfinning.“
Andri var einnig spurður út í kossinn sem faðir hans, Eiður Smári Guðjohnssen, gaf honum áður en hann kom inn á í sínum fyrsta landsleik gegn Rúmeníu á fimmtudag. ,,Bara svona father-son moment. Auðvitað er þetta pabbi minn sem aðstoðarþjálfari og maður reynir að halda þessu eins proffesional og maður getur. Hann var bara stoltur að sjá son sinn koma inn á í sínum fyrsta landsleik. Ef ég á að vera alveg hreinsskilinn þá man ég ekki alveg eftir þessu,“ sagði Andri um kossinn.
Andri leikur með númer 22 á bakinu. Það er sama númer og Eiður Smári bar á sínum ferli með landsliðinu. ,,Ég vissi ekkert að talan mín væri 22. Ég labbaði bara inn í klefa og sá númer 22 með Guðjohnsen á bakinu,“ sagði Andri að lokum.