fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
433Sport

Trippier bíður þolinmóður eftir skiptunum til Man Utd

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 30. júlí 2021 09:23

Kieran Trippier (til vinstri).

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kieran Trippier er tilbúinn til þess að bíða þar til í lok félagaskiptagluggans til þess að fá skiptin sín til Manchester United í gegn. Telegraph segir frá þessu.

Rauðu djöflarnir hafa mikinn áhuga á þessum bakverði Atletico Madrid. Félagið þarf þó að losa sig við einhverja leikmenn áður en þeir fá nýja inn. Man Utd hefur þegar eytt um 120 milljónum punda í þá Jadon Sancho og Raphael Varane.

Trippier er þrítugur. Hann hefur verið hjá Atletico frá árinu 2019. Hann varð til að mynda Spánarmeistari með liðinu síðasta vor. Þá er Trippier einnig fastamaður í enska landsliðinu.

Atletico vill um 30 milljónir punda fyrir bakvörðinn eins og er. Man Utd er ekki tilbúið til þess að borga svo háa upphæð fyrir hann.

Að bíða þar til í lok félagaskiptagluggans gæti veitt Man Utd og Trippier aukna möguleika á að fá skiptin í gegn fyrir lægri fjárhæð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Rosenior hefur fundið út úr því hver er að leka byrjunarliði Chelsea

Rosenior hefur fundið út úr því hver er að leka byrjunarliði Chelsea
433Sport
Í gær

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United
433Sport
Í gær

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate
433Sport
Í gær

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu
433Sport
Í gær

Fundin sek um að greiða undir lágmarkslaunum

Fundin sek um að greiða undir lágmarkslaunum
433Sport
Í gær

Tyrkirnir hóta því að fara í mál við Liverpool – Náðist að bjarga þumlinum

Tyrkirnir hóta því að fara í mál við Liverpool – Náðist að bjarga þumlinum
433Sport
Í gær

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik