„Viðbrögð leikskólakennara við takmörkunum sem settar voru á í liðinni viku hafa aftur á móti verið svolítið á skjön við restina. Á meðan helst er kvartað yfir hertum reglum og lokunum finnst þeim ekki nóg gert og hafa forsvarsmenn leikskólakennara og -stjóra birst í fjölmiðlum og kvartað yfir því að vinnustaðir þeirra skuli enn vera opnir,“ segir Björk Eiðsdóttir, ritstjóri helgarblaðs Fréttablaðsins, í leiðara blaðsins í dag.
Björk er ósammála óánægjuröddum úr röðum leikskólakennara sem telja að loka hefði átt leikskólum þegar samkomutakmarkanir vegna nýrrar bylgju kórónuveirufaraldursins voru hertar. Virðist Björk sem forystufólk leikskólakennara hafi ekki miðlað til þeirra réttum upplýsingum. Hún fer yfir þetta í leiðaranum:
„Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla, sagði frá því í Silfrinu á RÚV um helgina að starfsfólk leikskóla væri bæði þreytt og hrætt við veiruna. Með fullri virðingu fyrir tilfinningum þeirra sem annast yngstu Íslendingana, held ég að það sama megi segja um stóran hluta þjóðarinnar.
Sigurður sagði að „selja þyrfti“ leikskólakennurum hugmyndina um að halda opnu. Um leið sagðist hann sjálfur hafa fundað með sóttvarnalækni sem hefði útskýrt ákvörðunina og fyrir henni haft góð og gild rök. Þórólfur Guðnason hefur ítrekað svarað ákalli leikskólastarfsfólks með því að smithætta sé ekki aukin hjá börnum á leikskólaaldri. Enn sé notast við sömu nálgun og gert hafi verið allan faraldurinn og ekki hafi komið fram vandræði í sambandi við hana.
Hvers vegna þykir starfsfólki leikskóla því áhættan of mikil núna? Getur ekki verið að yfirmenn þeirra hefðu átt að halda þeim betur upplýstum um staðreyndir mála – og „selja þeim“ betur hugmyndina um að óhætt væri að mæta til vinnu rétt eins og gert hafi verið allan faraldurinn?“
Að mati Bjarkar myndi það ekki samrýmast meðalhófsreglu sem beita á í sóttvarnaaðgerðum ef leikskólum yrði lokað. Það yrði þungt högg fyrir allt samfélagið, þar á meðal heilbrigðiskerfið. Segir hún að ekki hafi komið fram gild rök fyrir lokun leikskóla, en sóttvarnalæknir hefur lýst því yfir að ekki stafi smithætta af börnum yngri en sex ára. Björk segir ennfremur í lok leiðarans:
„Gild rök verða að fylgja kröfu um lokun leikskóla. Þau hafa ekki komið fram. Aftur á móti virðist skorta á upplýsingagjöf til langþreytts starfsfólksins. Á tali forsvarsmanna þeirra virðist óttinn að miklu leyti snúast um hið nýja breska afbrigði, en samkvæmt upplýsingum frá Norðurlöndunum er ekki að merkja aukna smithættu hjá börnum undir sex ára aldri. Eins væri ekki úr vegi að koma leikskólastarfsfólki framar á forgangslista í bólusetningum. Alla vega að þau væru fremst í áttunda hópnum sem þau nú eru sett í ásamt fjölmörgum fleirum.
Að þessu hefðu stjórnendur leikskóla átt að vinna í stað þess að ala enn frekar á ótta starfsfólks síns og fara fram á að það sé sent heim fram yfir páska.
Við þurfum síst enn frekari lömun á atvinnustarfsemi í landinu.“