Í ljósi samfélagssmita COVID-19 verður Landspítali færður af óvissustigi á hættustig núna á miðnætti, miðvikudaginn 24. mars. Í hættustigi felst að orðinn atburður kallar á að starfað er eftir viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsóttar. Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd koma saman reglulega og eftir þörfum eftir því sem atburðum vindur fram.
Á fundi viðbragðsstjórnar og farsóttanefndar var ákveðið að grípa til eftirfarandi ráðstafana sem gilda frá miðnætti í kvöld þar til annað verður ákveðið. Í þessu felast í sér ákveðnar breytingar:
SJÚKLINGAR OG GESTIR
1. Heimsóknir takmarkast við einn gest á dag til hvers sjúklings. Hámarksdvöl er ein klukkustund. Brýnt er að heimsóknargestir viðhafi persónulegar sóttvarnir, noti andlitsgrímur, virði fjarlægðarmörk (2 metra) og séu fullvissir um að þeir hafi engin einkenni sem samrýmst geta einkennum COVID-19.
2. Á dag- og göngudeildum og öðrum meðferðarsvæðum gilda reglur um hámarksfjölda í rými (10 manns) og eru sjúklingar beðnir að kynna sér aðstæður á þeim deildum sem þeir eiga erindi á.
3. Ekki er gert ráð fyrir fylgdarmönnum með sjúklingum sem leita meðferða á dag- og göngudeildum á spítalanum, nema í sérstöku samráði við viðkomandi deildir.
4. Sé flutningur sjúklings á aðra stofnun fyrirhugaður skal taka af honum sýni áður en flutningur fer fram.
STARFSFÓLK
Nú liggur fyrir að næstu daga verður unnt að hefja bólusetningu 2.000 starfsmanna með bóluefni Pfizer. Starfsfólk mun fá boð í bólusetningu í farsíma sína. Munu þá ríflega 90% starfsfólks spítalans hafa hafið bólusetningu.
Starfsfólk er beðið að huga sérstaklega að persónulegum sóttvörnum, notkun andlitsgríma alltaf og alls staðar og virða fjarlægðarmörk og fjöldatakmarkanir í kaffistofum og matsölum spítalans. Áréttað er að reglur gilda um allt starfsfólk, bólusett jafnt sem óbólusett, sem og aðra þá sem hafa mótefni gegn COVID-19.
Starfsfólk er eindregið hvatt til að forðast ferðalög næstu vikur og gæta fyllstu varúðar innan og utan vinnustaðar. Verði starfsmaður var við minnstu einkenni skal hann óska eftir sýnatöku hjá starfsmannahjúkrunarfræðingi. Þetta gildir einnig um bólusetta starfsmenn.