fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
433Sport

Bournemouth hefur hafið formlegar viðræður við Montreal vegna Thierry Henry

Aron Guðmundsson
Föstudaginn 19. febrúar 2021 18:21

Thierry Henry. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enska B-deildar liðið Bournemouth hefur hafið formlegar viðræður við CF Montreal um að gera Thierry Henry knattspyrnustjóra Montreal að knattspyrnustjóra Bournemouth.

Jason Tindall var á dögunum rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Bournemouth og Jonathan Woodgate var ráðinn bráðabirgðastjóri á meðan leit stendur yfir að nýjum knattspyrnustjóra.

Búist er við að Henry taki við Bournemouth á allra næstu dögum, hann þarf að ná samkomulagi við Montreal Impact um að láta af störfum.

Arsene Wenger stjóri þeirra hjá Arsenal segir að þeir félagar hafi barist um starfið. „Ég vissi að Vieira var nálægt þessu. Ég átti ekki von á því að Henry færi í þetta vegna starfsins í Montreal,“ sagði Wenger um málið.

Henry tók fyrst við Monaco árið 2018 en var rekinn stuttu síðar, hann var aðstoðarþjálfari Belgíu og tók svo við Montreal Impact í fyrra.

„Bournemouth er gott félag, þetta er góð áskorun,“ sagði Wenger um málið.

„Bournemouth er með góða leikmenn, það er gott skref fyrir ungan stjóra að koma þarna inn. Þetta er góð áskorun til að koma liðinu upp í efstu deild.“

Bournemouth er í næst efstu deild en félagið á góðan möguleika á að komast upp og þá sérstaklega í gegnum umspil. Liðið situr í 6. sæti deildarinnar með 49 stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Selur hlut sinn og Palace vonast til að fá að vera með

Selur hlut sinn og Palace vonast til að fá að vera með
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stelpurnar okkar héldu utan í dag – Myndir

Stelpurnar okkar héldu utan í dag – Myndir
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Stuðningsmenn Manchester United gjörsamlega trylltir eftir að leikmaður liðsins birti þessa mynd

Stuðningsmenn Manchester United gjörsamlega trylltir eftir að leikmaður liðsins birti þessa mynd
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vilja greiða vel fyrir manninn sem fékk leið á Sádí eftir stutta dvöl – Einnig áhugi frá Englandi

Vilja greiða vel fyrir manninn sem fékk leið á Sádí eftir stutta dvöl – Einnig áhugi frá Englandi
433Sport
Í gær

Sjáðu hreint ótrúleg tilþrif í Hafnarfirðinum í dag

Sjáðu hreint ótrúleg tilþrif í Hafnarfirðinum í dag
433Sport
Í gær

Íbúar í litlu samfélagi harmi slegnir í kjölfar fregna um andlát fjölskyldumanns

Íbúar í litlu samfélagi harmi slegnir í kjölfar fregna um andlát fjölskyldumanns