fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
433Sport

Sex marka jafntefli á Stamford Bridge

Aron Guðmundsson
Laugardaginn 17. október 2020 15:57

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea og Southampton gerðu 3-3 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikið var á Stamford Bridge í Lundúnum.

Timo Werner kom Chelsea yfir með marki á 15. mínútu eftir stoðsendingu frá Ben Chilwell.

Werner var síðan aftur á ferðinni á 28. mínútu þegar hann tvöfaldaði forystu heimamanna.

Danny Ings minnkaði muninn fyrir Southampton með marki á 43. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Chelsea.

Á 57. mínútu jafnaði Che Adams leikinn fyrir Southampton. Leikmenn Chelsea voru þó ekki lengi að svara fyrir sig því tveimur mínútum síðar kom Kai Havertz þeim yfir.

Leikmenn Southampton neituðu hins vegar að gefast upp. Í uppbótartíma jafnaði Jannick Vestergaard leikinn fyrir Southampton með marki eftir stoðsendingu frá Theo Walcott.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum. Chelsea er eftir leikinn í 6. sæti með 8 stig. Southampton er í 10. sæti með 7 stig.

Chelsea 3 – 3 Southampton
1-0 Timo Werner (’15)
2-0 Timo Werner (’28)
2-1 Danny Ings (’43)
2-2 Che Adams (’57)
3-2 Kai Havertz
3-3 Jannick Vestergaard (’90+2)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hafna tilraunum Börsunga

Hafna tilraunum Börsunga
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Salah ekki tekið ákvörðun um hvað hann vill gera í sumar

Salah ekki tekið ákvörðun um hvað hann vill gera í sumar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Íþróttavikan: Benni Bó og Jóhann Alfreð eru brattir fyrir sumrinu á Hlíðarenda

Íþróttavikan: Benni Bó og Jóhann Alfreð eru brattir fyrir sumrinu á Hlíðarenda
433Sport
Í gær

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni
433Sport
Í gær

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans