Robbie Keane er að taka við sem þjálfari LA Galaxy, hann hafði starfað sem þjálfri hjá Middlesbrough en fær nú sitt fyrsta tækifæri sem aðalþjálfari.
Þessi fertugi fyrrum framherji frá Írlandi átti góða tíma sem leikmaður hjá LA Galaxy og snýr nú aftur ef marka má fréttir.
Guillermo Barros Schelotto var rekinn úr starfi í upphafi vikunnar en LA Galaxy er á botni deildarinnar eftir 16 leiki.
Keane lét af störfum sem aðstoðarþjálfari Middlesbrough í júní þegar Jonathan Woodgate var rekinn úr starfi.
Keane átti farsælan feril á Englandi og lék meðal annars með Liverpool og Tottenham.