fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
433Sport

Það sem Sara Björk gerði eftir leikinn vekur athygli

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 31. ágúst 2020 11:28

Sara Björk Gunnarsdóttir er fyrirliði Íslands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sara Björk Gunnarsdóttir náði mögnuðum áfanga í gær þegar hún varð fyrsti Íslendingurinn til að skora í úrslitaleiknum og vinna Meistaradeildina. Það sem Sara gerði eftir leikinn hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.

Sara gekk í sumar til liðs við franska liðið Lyon en fyrir það spilaði hún með þýska liðinu Wolfsburg. Sara mætti sínum gömlu liðsfélögum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gærkvöldi og vann leikinn. Sara tryggði sigur Lyon með marki á lokamínútum leiksins.

Þegar leikurinn var flautaður af og Sara var orðinn sigurvegari þá fagnaði hún vel enda stór áfangi að sigra Meistaradeildina. En svo áttaði hún sig á því að hún væri að fagna gegn sínum gömlu samherjum. „Ég var búin að hugsa um það fyrir leikinn að svona aðstæður gætu komið upp en maður verður að fara bara eftir tilfinningunum sínum,“ sagði Sara í samtali við Vísi um atburðarrásina eftir leikinn.

„Ég sýndi stelpunum í Wolfsburg auðvitað mikla virðingu í leiknum, fyrir hann og eftir leik. Mér fannst ekkert að því að fagna. Eftir leik fór ég til Pernille og knúsaði hana, og hún sagði bara „til hamingju, þú átt þetta skilið“. Það er erfitt að segja eitthvað á svona stundu en ég labbaði þarna um og tók utan um leikmennina og starfsliðið hjá Wolfsburg.“

Sara veit hvað það er erfitt að tapa í úrslitaleik en hún tapaði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar með Wolfsburg gegn Lyon árið 2018. „Ég veit best sjálf hvað þær hafa lagt á sig til að komast í úrslitaleikinn, og hversu mikið þær vildu vinna. Ég veit líka hvernig er að tapa úrslitaleik. Það var leiðinlegt að sjá þær og ég fann til með þeim,“ sagði Sara.

Eftir leikinn knúsaði Sara vinkonu sína og fyrrum liðsfélaga, Pernille Harder. Myndband og myndir af þessu hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum en Pernille deildi meðal annars sjálf mynd af því þegar þær knúsuðust eftir leikinn. „Til hamingju,“ skrifaði Pernille með myndinni á Instagram-síðu sinni . „Við söknum þín gífurlega mikið. Við elskum þig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Staðfesta komu Pogba

Staðfesta komu Pogba
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fær skrefið til Sádi eftir fall í næst efstu deild

Fær skrefið til Sádi eftir fall í næst efstu deild
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Semur mjög óvænt við Liverpool

Semur mjög óvænt við Liverpool
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fyrirgefur stórstjörnunni sem byrjaði að fylgja honum á Instagram – ,,Þetta særði mig ef ég er hreinskilinn“

Fyrirgefur stórstjörnunni sem byrjaði að fylgja honum á Instagram – ,,Þetta særði mig ef ég er hreinskilinn“