fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Hefur ekki fyrirgefið Gerði Kristnýju fyrir að ræða við morðingja vinar síns – „Löglegt en fullkomlega siðlaust“

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 19. ágúst 2020 12:30

Mynd/Eyþór Árnason - Gerður Kristný

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Þórðarson skrifaði pistil sem birtist í Vísi í gær. Þar ræddi hann viðtal sem að Gerður Kristný tók á Litla Hrauni fyrir Mannlíf árið 1999, við Þórhall Ölversson, sem hafði verið dæmdur fyrir morð. Sigurður var æskuvinur Agnars Agnarssonar, fórnarlambs Þórhalls. 

Á dögunum var Gerður Kristný gestur í þættinum Snæbjörn talar við fólk, sem er í umsjón Snæbjörns Ragnarssonar. Þar ræddi hún meðal annars þetta viðtal.

Það var fyrir meira en 20 árum og mér hefur ekki enn tekist að fyrirgefa Gerði Kristný fyrir þetta furðulega viðtal sem hún tók við Þórhall Ölversson, morðingja sem var gripinn var með blóðugar hendur eftir morðið á æskuvini mínum Agnari Agnarssyni.

Sem ritstjóri Mannlífs gaf hún morðingjanum færi á að réttlæta verknaðinn meðal annars með því að bera á fórnarlamb sitt upplognar sakir um refsiverða háttsemi. Með þessu háttarlagi reyndi þáverandi ritstjóri Mannlífs að ræna ærunni af hinum látna, þótt fátt ef nokkuð styddi frásögn morðingjans, sem ritstjórinn þóttist trúa, vitandi að hinn látni gat ekki borið af sé sakir sem ritstjórinn tíundaði í blaði sínu.

Sigurður segir að viðtal Gerðar hafi verið auka áfall fyrir þá sem syrgðu Agnars. Þá lýsir Sigurður vettvangi glæpsins, sem hann fékk að heimsækja og segir að um ránmorð hafi verið að ræða. Þá segist hann vera meðvitaður um ástæðu morðsins. Hann segir að Agnar hafi átt mikinn pening, sem hann hafi aldrei fundist.

Þetta var áfall og viðbótar refsing fyrir okkur sem syrgðu látinn vin. Sem nánasti aðstandandi hafði ég fengið að skoða heimili Agnars, sem var morðvettvangurinn. Blóði drifin íbúðin bar það með sér að um ránmorð var að ræða, morðinginn hafði augljóslega leitað í bókahillum og gefið sér góðan tíma til að fletta bókum, blóðugum höndum. Fjöldi misdjúpra stungusára þöktu líkama fórnarlambsins og báru glöggt merki um hetjulega baráttu sem sennilega hefur tekið nokkrar klukkustundir.

Þar sem ég var náinn vinur fórnarlambsins vill svo til að ég veit nákvæmlega um ástæðu ránmorðsins: Ástæðan var sú að Agnari hafði þá nýverið tæmst arfur og ég var einn örfárra sem vissi að hann geymdi allt féð í gjaldeyri á heimili sínu. Þessi vitneskja hafði illu heilli borist til morðingjans, Þórhalls Ölvissonar, fáum klukkustundum fyrir verknaðinn.

Aldrei hefur verið upplýst hvað varð um alla peningana, sem voru í reiðufé eins og áður segir. Um þetta hef ég gefið skýrslur bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Þessi skelfilega saga rifjaðist upp þegar ég las fréttir af því í fjölmiðlum að rithöfundurinn Gerður Kristný var að hæla sér af þessu framtaki sínu í hlaðvarpsþætti Ríkisútvarpsins.

Að lokum segir hann að sorg aðstandenda hafi yfirsést Gerði þar sem að hún fór í „spennandi“ ferð á Litla-Hraun. Hann segir að mannorðsmorð á einstaklingum sem hafi þegar verið myrtir séu ekki refsiverð, en þau séu „fullkomlega siðlaus“.

Þar yfirsést Gerði sorgin yfir voveiflegu morði en rithöfundurinn kemst á flug yfir spennandi ferð sinni á Litla-Hraun, þar sem rithöfundurinn þykist hafa náð fram óvæntri játningu. Mannorðsmorð er refsilaust sé sá er fyrir því verður þegar myrtur. Löglegt en fullkomlega siðlaust.

Hér að neðan er hægt er að hlusta á hlaðvarpsþáttinn Snæbjörn talar við fólk:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir manni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Það var alltaf bíll sem kom einu sinni í mánuði um nótt og var svo farinn eldsnemma morguns“

„Það var alltaf bíll sem kom einu sinni í mánuði um nótt og var svo farinn eldsnemma morguns“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hvarf Jóns Þrastar Jónssonar: Írskir lögreglumenn munu taka skýrslur af 35 manns hérlendis

Hvarf Jóns Þrastar Jónssonar: Írskir lögreglumenn munu taka skýrslur af 35 manns hérlendis
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pétur sár út í Kristrúnu: Segir þúsundum Íslendinga hafa runnið kalt vatn milli skinns og hörunds við þessi orð hennar

Pétur sár út í Kristrúnu: Segir þúsundum Íslendinga hafa runnið kalt vatn milli skinns og hörunds við þessi orð hennar