fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025

Kelly Clarkson, Al Pacino og Cara Delevingne – skilnaðir í skugga Covid!

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 13. júlí 2020 21:00

Ashley og Cara eru hættar saman.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessi dægrin hrúgast inn fréttir af sambandsslitum og hjónaskilnuðum í Hollywood. Fyrir örfáum vikum bárust fregnir af skilnaði Kelly Clarkson og eiginmanni hennar til sjö ára, Brandon Blackstock. Kunnugir segja að hrikt hafi í stoðum hjónabandsins síðustu mánuði en Kelly og Brandon hafi vonast til að sóttkví á búgarði sínum í Montana myndi hafa góð áhrif á sambandið en vistin hafði þveröfug áhrif og reið hjónabandinu að fullu. Um helgina var svo tilkynnt um skilnað The Social Network leikarans Armie Hammer og Elizabeth Chambers eftir tíu ára hjónaband. Stuttu áður slitu þáttastjórnandinn Ryan Seacrest og stjörnukokkurinn Shayna Taylor samvistum.

Sjö ára hjónabandi lokið.

Eftir tveggja áratuga hjónaband ákváðu rapparinn og tónlistarmógúllinn Dr. Dre og eiginkona hans Nicole Young að sækja um skilnað. Svipaða sögu er að segja um Dirty Dancing leikkonuna Jennifer Grey og leikarann Clark Gregg sem tilkynntu um skilnað rétt fyrir 19 ára brúðkaupsafmælið þeirra. Leikarahjónin Megan Fox og Brian Austin Green hafa einnig sagt þetta gott eftir 10 ára hjónaband. Christina Ricci og James Heerdegen skildu í júní í kjölfar ásakana um heimilisofbeldi eftir sjö ára hjónaband og Mary-Kate Olsen  og Olivier Sarkozy hafa látið staðar numið eftir fimm ár.

Eiginkona Dr. Dre hefur sótt um skilnaði eftir 20 ára hjónaband.

Það eru ekki aðeins löngu samböndin sem gefa upp öndina. Ofurfyrirsætan Cara Delevingne og Ashley Benson eru hættar saman eftir tveggja ára samband og það sama er uppi á teningnum hjá Al Pacino og ísraelsku kærustunni hans, Meital Dohan, sem gaf upp raunverulega ástæðu sambandsslitanna í The Times of Israel á dögunum. „Það er erfitt að vera með svona gömlum manni, meira að segja Al Pacino. Aldursbilið er erfitt. Ég reyndi að líta fram hjá því en hann er orðinn gamall maður. Það gekk bara ekki þó ég elskaði hann,“ segir Meital en 36 ár eru á milli hennar og hins 79 ára gamla Al Pacino.

36 ára aldursmunur var of mikið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Arsenal sagt komið í slaginn við önnur stórlið um franska framherjann

Arsenal sagt komið í slaginn við önnur stórlið um franska framherjann
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Amanda: „Truflaði okkur aðeins en nú erum við búnar að venjast honum“

Amanda: „Truflaði okkur aðeins en nú erum við búnar að venjast honum“
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Missti 68 kíló á Ozempic – „Ég er líka að missa minnið, sjónina og heyrnina“

Missti 68 kíló á Ozempic – „Ég er líka að missa minnið, sjónina og heyrnina“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Forseti Sporting glerharður – Telur upp leikmenn sem Arsenal og United hafa keypt í sumar

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.