fbpx
Föstudagur 07.nóvember 2025

Safna undirskriftum fyrir Miu Khalifa

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 30. júní 2020 13:00

Mia Khalifa.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmlega 1,3 milljón manns hafa tekið þátt í undirskriftarsöfnun um að láta fjarlægja klámmyndbönd Miu Khalifu af veraldavefnum. „Jafnrétti fyrir Miu Khalifa,“ segir í undirskriftarsöfnuninni.

Á dögunum ráðlagði Mia Khalifa ungum konum að feta ekki í sín fótspor. Hún sagði að klámferill hennar muni ásækja hana það sem hún á eftir ólifað.

Sjá einnig: Mia Khalifa segir að myndböndin muni ásækja hana það sem hún á eftir ólifað

Mia lék í ellefu klámmyndum yfir þriggja mánaða tímabil árið 2014. Hún komst í heimsfréttirnar þegar hún fékk morðhótanir frá ISIS eftir að hafa komið fram í klámmynd með slæðu (e. hijab).

Mia opnaði sig á TikTok um áhrifin sem myndböndin hafa haft á andlega heilsu hennar. Hún segir að það sé erfitt að hugsa til þess að mörg hundruð milljóna manna muna bara eftir henni frá því að hún var 21 árs og á mjög slæmum stað í lífi sínu.

Fyrir sex dögum síðan fór netverjinn kia.flowers af stað með undirskriftasöfnun sem rúmlega 1,3 milljón manns hafa skrifað undir. Markmiðið er að fá 1,5 milljón manns til að skrifa undir.

Undirskriftarsöfnunin miðar að því að hvetja Pornhub, Feras Antoon, David Tassillo, MG Freesites ltd. og Bang Bros til að gefa Miu lénsheiti sitt aftur, fjarlægja myndböndin og ræða um eignarhald þeirra í dómsstólum án þess að Mia fari í gjaldþrot.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Krefst skilnaðar frá manni sem hún telur hafa gifst sér af hagkvæmnisástæðum

Krefst skilnaðar frá manni sem hún telur hafa gifst sér af hagkvæmnisástæðum
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Í þriggja ára bann frá leikjum eftir hómófóbísk orð um leikmenn Chelsea og Diogo Dalot

Í þriggja ára bann frá leikjum eftir hómófóbísk orð um leikmenn Chelsea og Diogo Dalot
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Emi Martínez sviptur stóru hlutverki hjá Aston Villa – Emery útskýrir ákvörðun sína

Emi Martínez sviptur stóru hlutverki hjá Aston Villa – Emery útskýrir ákvörðun sína
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Tækifæri til að klára jólagjafakaupin og spara stórfé

Tækifæri til að klára jólagjafakaupin og spara stórfé

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.