fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
433Sport

Öllu knattspyrnufólki boðið að koma í skimun eftir þrjú staðfest smit

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 29. júní 2020 10:20

Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allir leikmenn í efstu deild karla og kvenna hafa fengið boð um að mæta í skimun vegna kórónuveirunnar. Mbl.is segir frá. Íslensk erfðagreining mun framkvæma þessa skimun.

„Ástæðan fyr­ir því að þessi hóp­ur er val­inn er ald­urs­dreif­ing og að dæm­in sanna að þetta er ald­ur sem á sam­skipti við marga. Niður­stöður úr þess­ari skimun verða því mjög gagn­leg­ar,“ segir í bréfi Víðis Reynissonar til félaga í landinu.

Þrjú staðfest smit eru á meðal liða í efstu deild á Íslandi. Í gær greindist leikmaður kvennaliðs Fylkis með COVID-19.

Umræddur leikmaður var gestur í útskriftarveislu fyrir rúmri viku en frá þeirri veislu hafa nú fjögur smit greinst. Fyrst greindist leikmaður kvennaliðs Breiðabliks um miðja vikuna.

Leikmaður í meistaraflokki karla Stjörnunnar greindist svo með smit á föstudag en hann var einnig gestur í sömu veislu. Starfsmaður at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­is­ins greind­ist einnig með veiruna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fyrrum stjarna Arsenal og Liverpool opnar sig – „Það var erfitt og ég vil ekki fara í gegnum það aftur“

Fyrrum stjarna Arsenal og Liverpool opnar sig – „Það var erfitt og ég vil ekki fara í gegnum það aftur“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ekki að spila nóg til að komast í landsliðið

Leikmaður Arsenal ekki að spila nóg til að komast í landsliðið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vonarstjarna Chelsea kvartar undan kulda í London – Stjórinn varar hann við því sem er á leiðinni

Vonarstjarna Chelsea kvartar undan kulda í London – Stjórinn varar hann við því sem er á leiðinni
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Svarar fyrir dónaleg skilaboð sem hún á að hafa sent á mann sem er í sambandi með samstarfskonu

Svarar fyrir dónaleg skilaboð sem hún á að hafa sent á mann sem er í sambandi með samstarfskonu