fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
Fréttir

Eldhúsdagsumræður í kvöld – þessir þingmenn halda ræður

Erla Hlynsdóttir
Þriðjudaginn 23. júní 2020 10:21

Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingmenn Miðflokksins eru fyrstir á mælendaskrá í öllum umferðum í eldhúsdagsumræðunum á Alþingi í kvöld. Þingmaður utan flokka, Andrés Ingi Jónsson, talar í lok fyrstu umferðar.

Umræðurnar hefjast klukkan 19:30, skiptast í þrjár umferðir  og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og fimm mínútur í síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins, þingmaður utan flokka fær fimm mínútur í lok fyrstu umferðar.

Ræðumenn flokkanna verða eftirtaldir:

Fyrir Miðflokkinn tala Gunnar Bragi Sveinsson, 6. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Sigurður Páll Jónsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og í þeirri þriðju Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Njáll Trausti Friðbertsson, 6. þm. Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Samfylkinguna tala í fyrstu umferð Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, í annarri Ágúst Ólafur Ágústsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri þriðju Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ari Trausti Guðmundsson, 5. þm. Suðurkjördæmis, og í annarri og í þriðju umferð Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 3. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Pírata eru í fyrstu umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og Helgi Hrafn Gunnarsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru Líneik Anna Sævarsdóttir, 9. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og í þriðju umferð Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Viðreisn tala í fyrstu umferð Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu og þriðju umferð en Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“
Fréttir
Í gær

Svona verður veðrið í dag – 19 gráður og heiðskírt í Reykjavík en það er bara byrjunin

Svona verður veðrið í dag – 19 gráður og heiðskírt í Reykjavík en það er bara byrjunin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Boðar grundvallarbreytingar á umgjörð elsta ríkisútvarps heims

Boðar grundvallarbreytingar á umgjörð elsta ríkisútvarps heims
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framlag ríkisins til umdeilds listaverks hefur hækkað um 10 milljónir á einu ári

Framlag ríkisins til umdeilds listaverks hefur hækkað um 10 milljónir á einu ári
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bretar undirbúa sig undir árás Rússa

Bretar undirbúa sig undir árás Rússa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum