Flugfélögin Easy Jet, American Airlines, Delta, British Airways, KLM og Virgin Australia hafa hætt áfengissölu um borð og banna gestum að neyta þess í vélum sínum. Þó áfengissala hafi aukist á tímum Covid-19 verða farþegar þessara flugfélaga að sætta sig við vatn og gos í flöskum á flugferðum sínum. Icelandair selur ekkert áfengi né mat í sínum vélum sem stendur en farþegar fá poka með vatni og nasli við komu um borð.
CNN greinir frá og segir eina ástæðuna vera að með því að selja ekki áfengi um borð sé vonast til þess a klósettferðum farþega fækki. Viðskiptavinum er ekki heimilt að koma sjálfir með áfengi um borð en aðrir drykkir og nesti eru leyfðir þar sem engin sala er á mat hjá allflestum flugfélögum. Mörg flugfélög bjóða upp á hreinsipakka við komu um borð sem inniheldur andlitsgrímu, sótthreinsandi gel og blautþurrkur.
Ekki er ljóst hvenær áfengissala verður leyfð aftur um borð en flest flugfélag krefjast þess að starfsfólk og viðskiptavinir noti grímu um borð og lagt er upp með eins litla þjónustu við gesti og mögulegt er.