Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir rúmenskum karlmanni, Pioaru Alexandru Ionut, sem kom til landsins fyrripart síðustu viku í sex manna hópi.
Tveir úr honum hafa greinst með COVID-19 og því er uppi grunur að það sama geti átt við um manninn sem leitað er að. Tveir samlandar hans, sem lýst var í gær, eru fundnir og eru í vörslu lögreglu. Myndir af þeim voru birtar í fjölmiðlum í gær, en meðfylgjandi er mynd af Ionut, sem er á þrítugsaldri.
Sjá einnig: Tveir Rúmenar fundnir en lögreglan leitar enn að þeim þriðja
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Ionut, eða vita hvar hann er niðurkominn, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112. Starfsmenn gististaða og hótela eru sérstaklega beðnir um að vera á varðbergi og tilkynna um Ionut hafi þeir orðið varir við ferðir hans.