fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Landsvirkjun boðar nýjung í framleiðslu sinni – „Enn fátíð í heiminum“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 28. maí 2020 10:22

Ljósafossvirkjun

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsvirkjun undirbýr nú hugsanlega vetnisvinnslu og til að byrja með telur fyrirtækið hentugt að hefja slíka vinnslu við Ljósafossstöð. Landsvirkjun hefur kynnt þann möguleika fyrir sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun:

„Við Ljósafoss yrði framleitt svokallað grænt eða hreint vetni, sem fæst með rafgreiningu vatns með endurnýjanlegum orkugjöfum. Slík umhverfisvæn framleiðsla á vetni er enn fátíð í heiminum, en víða er vetni unnið úr jarðgasi og markar umtalsverð kolefnisspor,“

segir Auður Nanna Baldvinsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Landsvirkjun.

Starfsemin við Ljósafoss myndi rúmast í tæplega 700 fermetra byggingu, þar sem hægt væri að auka við framleiðslu eftir því sem eftirspurn yrði meiri, en sem dæmi gæti rafgreinir í fullri stærð notað allt að 10 MW af raforku til vetnisframleiðslu. Slík framleiðsla myndi nægja til að knýja bílaflota sem nemur a.m.k. öllum vögnum Strætó samkvæmt tilkynningunni.

Eldsneyti framtíðar

Auður Nanna segir að vetni, rafhlöður og metan hafi mismunandi eiginleika, en þarfir notenda skipti mestu máli í vali á orkugjafa:

„Vetnið telst auðvelt í vinnslu miðað við margt annað eldsneyti og starfsfólk Landsvirkjunar hefur þegar þá grunnþekkingu sem þarf til framleiðslunnar, þótt frekari þjálfunar sé þörf,“

segir hún.

Við vinnslu vetnis knýr raforka svokallaðan rafgreini, sem klýfur vatn í frumefni sín, vetni og súrefni. Fjölmargir kostir fylgja vetni sem orkugjafa. Það er ekki skaðlegt fyrir umhverfi og náttúru og veldur ekki mengun. Það er léttara en andrúmsloft og rýkur því mjög hratt upp ef leki á sér stað.  Þrátt fyrir fjölmarga kosti hefur vetnið sína galla. Það er plássfrekt og kostnaðarsamt í geymslu og flutningi. Þá er vetnið vissulega eld- og sprengifim gastegund, svo umgengni öll verður að lúta sömu öryggiskröfum og olíu- og bensínstöðvar. Vetnisgeymar eru vel varðir fyrir hnjaski og um vetnisflutninga gilda sömu reglur og um olíuflutningabíla, þ.e.  strangar og viðurkenndar öryggisreglur.

Auður Nanna segir að mikill kostur á vetnisvinnslu sé sú staðreynd, að auðvelt sé að stýra framleiðslunni:

„Rafgreinar þola vel að kveikt sé og slökkt á vinnslunni í samræmi við eftirspurn, svo framleiðandinn getur hagað henni eftir þörfum markaðarins hverju sinni.“

4% bílaflotans ábyrgur fyrir 15% útblásturs

Þegar öflug vetnisvinnsla er komin í gang felst í henni hvati fyrir ýmsa anga atvinnulífsins að huga að vistvænni rekstri að sögn Landsvirkjunar:

„Þannig má t.d. benda á, að vöruflutningabílar eru eingöngu um 4% íslenska bílaflotans, en þeir bera hins vegar ábyrgð á 15% alls útblásturs, sem frá bílum stafar.“

Fjölmargar þjóðir hafa nú sett sér vetnisstefnu. Evrópusambandið og Japan hafa gefið út vetnisvegvísi og áforma stórtæka notkun vetnis í sínum orkukerfum. Vetnið má nýta í rafmagnsframleiðslu, iðnaðarferla, hitaveitu og sem orkugjafa í samgöngum. Ef vetnið er framleitt með endurnýjanlegri orku er það nánast kolefnislaust.

Kynning Landsvirkjunar fyrir sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps á fyrirhugaðri vetnisvinnslu við Ljósafossstöð var fyrsta skrefið á leið að vetnisstöð, að sögn Auðar Nönnu. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 er landnotkun á fyrirhuguðu svæði t.d. sýnd sem íbúðabyggð. Eigi vetnisstöðin að rísa þar þarf lóðin undir vinnsluna að vera skilgreind sem iðnaðarsvæði

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum