fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025

Veiðilíf komið út hjá Flugubúllunni

Gunnar Bender
Þriðjudaginn 21. apríl 2020 12:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það markar viss tímamót núna ár hvert þegar Veiðilíf Flugubúllunnar kemur út, enda markar það upphaf veiðitímabilsins – tímabilsins sem sem við öll erum búin að vera að bíða eftir svo óskaplega lengi frá því að tímabilinu lauk árinu á undan.

Veiðilíf 2020 kom út 1. apríl síðastliðinn, en Veiðilíf 2020 er vöru- og upplýsingabæklingur Flugubúllunnar fyrir árið 2020 og hafa starfsmenn Flugubúllunnar verið sveittir við senda viðskiptavinum eintök um land allt.

Það er langur vetur að baki og án efa margir farnir að setja sig í gírinn að hefja skemmtilegt veiðitímabil. Það hefur verið kalt veður í kortunum í upphafi þessa tímabils, en ört víkur kaldur veturinn og við tekur fallegt sumar eins og þau gerast best á Íslandi.
Og á þessum skrítnu tímum sem við erum að upplifa núna hvað er þá betra en að hafa gott lesefni við höndina.

Efnisinnihald og umgjörð Veiðilífs er einstaklega vandað, en þar er að finna upplýsingar um flestar vörur sem verða í boði hjá Flugubúllunni árið 2020. En einnig eru þarna ýmsar smágreinar s.s. veiði í Alaska, veiði í Mexíkó, Árni Kristinn segir frá hvernig hann nælir í stóru urriðana á Þingvöllum, og fleira.

Öll hönnun og umbrot þessa vandaða bæklings er í höndum starfsmanna Flugubúllunnar sjálfra og eru notaðar margar skemmtilegar myndir úr Íslanskri náttúru og frá íslenskum veiðimönnum og konum.

Veiðilíf 2020 er frítt og sendir Flugubúllan öllum sem óska eftir eintak hvert á land sem er.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Blaðamaður Morgunblaðsins lýsir ósætti við að horft sé framhjá Gylfa – Bent á fyrri ummæli Arnars í ljósi fjarveru hans

Blaðamaður Morgunblaðsins lýsir ósætti við að horft sé framhjá Gylfa – Bent á fyrri ummæli Arnars í ljósi fjarveru hans
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Tvenna hjá Manchester United

Tvenna hjá Manchester United
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Sjúklegt athæfi miðaldra klámstjörnu – Sögð hafa afhöfðað barnsföður sinn í ótrúlegum tilgangi

Sjúklegt athæfi miðaldra klámstjörnu – Sögð hafa afhöfðað barnsföður sinn í ótrúlegum tilgangi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Mynd: Hátt settur maður í bobba – „Hvað viltu fá fyrir að sofa hjá?“

Mynd: Hátt settur maður í bobba – „Hvað viltu fá fyrir að sofa hjá?“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Darwin Nunez strax aftur til Englands?

Darwin Nunez strax aftur til Englands?
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Fjögurra barna móðir skotin til bana – fór á rangt heimili í vinnunni

Fjögurra barna móðir skotin til bana – fór á rangt heimili í vinnunni
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Varahéraðssaksóknari handtekinn fyrir utan skemmtistað í ágúst og gisti í fangageymslu

Varahéraðssaksóknari handtekinn fyrir utan skemmtistað í ágúst og gisti í fangageymslu