Ólátabelgurinn og fyrrum knattspyrnumaðurinn, Mido fór að gera vel við sig í mat og drykk eftir að knattspyrnuferli hans lauk árið 2013. Mido fór að bæta hratt á sig kílóum en hann er frá Egyptalandi.
Mido heitir fullur nafni Ahmed Hossam Hussein Abdelhamid en hann lék fyrir Tottenham, Ajax, Roma og fleiri lið á farsælum ferli.
Það var í mars í fyrra sem mynd af Mido birtist á bát með vinum sínum, talsvert grín var gert að Mido fyrir vaxtarlag sitt á veraldarvefnum. Hann tók það inn á sig og ákvað að gera eitthvað í málunum.
Mido hefur síðan þá komið sér í svakalegt form en fitufordómarnir höfðu áhrif á hann.