fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
433Sport

Víðir segir frá því hvaða lið hann styður: „Ég er ekki einn af þessum sem þolir ekki Liverpool“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. mars 2020 13:30

Skjáskot RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá embætti Ríkislögreglustjóra hefur á skömmum tíma orðið eitt af óskabörnum þjóðarinnar.

Viðir hefur leitt þá vinnu ásamt öðrum að reyna að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Víðir var í skemmtilegu spjalli við Ísland í dag í gær þar sem hann fór yfir lífið þessa dagana.

Hann hefur mikinn áhuga á fótbolta enda er hann aðeins í leyfi frá störfum sem öryggisstjóri KSÍ. Víðir sagði Sindra Sindrasyni frá því að hann væri stuðningsmaður Manchester United.

Víðir er þó ekki einn af þeim United mönnum sem er illa við Liverpool, erfiðir tímar er hjá United á meðan Liverpool er besta lið Englands. „Mér líður bara vel með það. Við erum búnir að eiga frábæra tíma og nú erum við bara að byggja upp og það er líka frábært,“ sagði Víðir í Ísland í dag.

,,Það er líka gaman að sjá það, sjá að það sé verið að gefa ungum leikmönnum tækifæri. Ég er ekki einn af þessum United-mönnum sem þolir ekki Liverpool. Það sem mér finnst skemmtilegt eru góð lið í fótbolta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Mun United enda á því að kaupa framherja úr Ofurdeildinni í Sádí Arabíu?

Mun United enda á því að kaupa framherja úr Ofurdeildinni í Sádí Arabíu?
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Rashford í miklum kvennafans í Frakklandi

Rashford í miklum kvennafans í Frakklandi
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fjórir fluttir á sjúkrahús þegar kviknaði í aðstöðunni sem Albert notar daglega

Fjórir fluttir á sjúkrahús þegar kviknaði í aðstöðunni sem Albert notar daglega
433Sport
Í gær

Nefnir tvo leikmenn United sem ættu að fara í sumar

Nefnir tvo leikmenn United sem ættu að fara í sumar