fbpx
Miðvikudagur 16.júlí 2025
Fréttir

„Reykjavíkurborg er besti vinur kennitöluflakkaranna“

Garðar í Urð og Grjót ehf. fordæmir innkaup Reykjavíkurborgar

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 15. september 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er nokkuð ljóst að Reykjavíkurborg er besti vinur kennitöluflakkaranna. Urð og Grjót er eitt af fáum jarðvinnuverktakafyrirtækjum sem hafa verið að borga skatt undanfarna áratugi og það er óþolandi að þurfa að keppa við rekstrarsóða og glæpamenn. Það sér það hver maður að það er ekki mikil sanngirni í þessu,“ segir Garðar Þorbjörnsson, stærsti eigandi Urðar og Grjóts ehf., í samtali við DV.

Í byrjun vikunnar samþykkti Innkauparáð Reykjavíkurborgar að taka tilboði lægstbjóðanda, Háfells ehf., í gatnagerð og lagnir á nýju byggingarsvæði á Strætóreitnum við Kirkjusand. Háfell var áður eitt umsvifamesta verktakafyrirtæki landsins og kom að stórum verkefnum eins og Héðinsfjarðargöngum og tvöföldun Reykjanesbrautar.

1,2 milljarða gjaldþrot

Síðan fór að halla undan fæti og fyrir rúmu ári var fyrirtækið, sem þá var rekið á 30 ára gamalli kennitölu, úrskurðað gjaldþrota. Ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabúið sem hljóðuðu upp á 1,2 milljarða króna. Eigandi Háfells ehf. var Skarphéðinn Ómarsson. Árið 2007 stofnaði Skarphéðinn svo annað fyrirtæki, Hálsafell ehf. Það fyrirtæki var í helmingseigu hans og Jóhanns Gunnars Stefánssonar til að byrja með en árið 2013 var fyrirtækið komið að fullu og öllu eigu Skarphéðins. Tveimur árum síðar var eiginkona Skarphéðins, Linda Arilíusdóttir, orðinn eigandi alls Hálsafells ehf. Staðan í dag er sú Linda á enn 99,2 prósenta hlut í fyrirtækinu en Pétur Guðmundsson á 0,8 prósenta hlut í gegnum félagið Mókoll ehf.

Í febrúar á þessu ári var nafni fyrirtækisins breytt í Háfell ehf. og síðan gerði fyrirtækið tilboð í hið umfangsmikla verkefni á Kirkjusandi. Háfell bauð 223,5 milljónir verkið sem samsvaraði 97 prósentum af kostnaðaráætlun. Næstlægsta tilboð átti fyrirtæki Garðars, Urð og Grjót ehf., en tilboð þess hljóðaði upp á 227,2 milljónir króna.

Innkaupareglur sem ganga ekki nógu langt

DV fjallaði á dögunum um viðskipti Reykjavíkurborgar við verktakafyrirtæki sem er starfrækt á sinni fjórðu kennitölu. Eigandi félagsins, Kristján Ólason, hafði á rúmum áratug, rekið að minnsta kosti sex fyrirtæki í þrot og rannsakar skattrannsóknarstjóri nú meint brot í tengslum við rekstur fyrirtækjanna. Þrátt fyrir þessa slóð gjaldþrota þá ganga innkaupareglur Reykjavíkurborgar ekki nógu langt til þess að koma í veg fyrir athæfi sem þetta.

Samband íslenskra sveitarfélaga setti fram fyrirmynd að innkaupareglum sveitarfélaga árið 2007 og þar var mælst til þess að viðskiptasaga þeirra sem leituðu eftir samningum við sveitarfélög yrði skoðuð. Ef sú könnun leiddi í ljós að eigandi eða fyrirtæki hefði lent í greiðslustöðvun eða gjaldþroti undanfarin fimm ár á undan bæri að vísa þessum aðila frá útboðinu, að því gefnu að í hlut ætti sams konar rekstrareining, með sömu eða nær sömu eigendur og í sömu eða nær sömu atvinnustarfsemi en með nýja kennitölu. Gildandi innkaupareglur borgarinnar, frá árinu 2014, tóku ekki mið af þessum tilmælum og því þrífast viðskipti borgarinnar við kennitöluflakkara.

Garðar er harðorður um ástandið hjá Reykjavíkurborg. „Fyrir um tíu árum var Reykjavíkurborg líklega besti verkkaupi sem völ var á. Síðan þá hefur ástandinu hrakað mjög og núna er þetta langversti verkkaupi sem hugsast getur. Það er einfaldlega þannig að ef menn komast í önnur verk þá fara þeir miklu frekar í þau heldur en að vinna fyrir borgina. Það þarf að vera eitthvað sérstakt til þess að ég nenni að gera tilboð í verk hjá Reykjavíkurborg. Síðan kemur í ljós að þeir púkka upp á glæpamenn,“ segir Garðar herskár. Aðspurður hverju sé um að kenna að þessi málaflokkur hjá borginni sé í ólestri segir Garðar: „Eftir höfðinu dansa limirnir. Hverjir eru búnir að stjórna hér í tæpan áratug?“ Þá gagnrýnir hann þá staðreynd að tilboðsgjafar fái ekki að vera viðstaddir þegar tilboðin eru opnuð og segir að það skapi tortryggni.

Blessun borgarlögmanns

Á áðurnefndum fundi Innkauparáðs borgarinnar í vikunni var samþykkt að ganga til samninga við Háfell ehf. með tveimur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar gegn einu atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokks. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Björn Gíslason, og áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, Jóna Björg Sætran, bentu bæði á rekstrarsögu Háfells og lagði Björn fram bókun þess efnis að mikilvægt væri að kanna rekstrarsögu fyrirtækja og ekki skyldi ganga til samninga við fyrirtæki sem nýlega hafa orðið gjaldþrota.

Dóra Magnúsdóttir og Magnea Guðmundsdóttir, fulltrúar Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar, báru fyrir sig álit borgarlögmanns sem komst að þeirri niðurstöðu að Háfell ehf. uppfyllti skilyrði í innkaupareglum borgarinnar. Til viðbótar létu fulltrúarnir bóka eftirfarandi klausu: „Fulltrúarnir telja brýna ástæðu til áframhaldandi endurskoðunar innkaupareglna Reykjavíkurborgar er lúta að kennitöluflakki og viðskiptasögu.“

DV freistaði þess að fá afrit af áliti borgarlögmanns en svör höfðu ekki borist þegar blaðið fór í prentun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Afmælisveislan breyttist í martröð – Sakaður um grófa nauðgun í endaþarm en sýknaður

Afmælisveislan breyttist í martröð – Sakaður um grófa nauðgun í endaþarm en sýknaður
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Neytendastofa segir Isavia hafa brotið gegn lögum um góða viðskiptahætti

Neytendastofa segir Isavia hafa brotið gegn lögum um góða viðskiptahætti
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Eldgos hófst í nótt: Á heppilegum stað og virðist ekki ógna innviðum

Eldgos hófst í nótt: Á heppilegum stað og virðist ekki ógna innviðum
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Háttsettir embættismenn og auðkýfingar hrynja eins og flugur

Háttsettir embættismenn og auðkýfingar hrynja eins og flugur
Fréttir
Í gær

Hvað gerðist í flugslysinu mannskæða: „Þeir segja okkur aðeins það sem þeir vilja að við vitum – hinu er haldið leyndu“

Hvað gerðist í flugslysinu mannskæða: „Þeir segja okkur aðeins það sem þeir vilja að við vitum – hinu er haldið leyndu“
Fréttir
Í gær

Enn hlýrra loft í kortunum í dag

Enn hlýrra loft í kortunum í dag