Allir leikmenn hjá einu félagi í ensku úrvalsdeildinni eru í dag á leið í skoðun vegna kórónuveirunnar, próf verður tekið af öllum.
Þrír leikmenn hjá þessu félagi hafa verið með einkenni og sá fyrsti fór í sóttkví í vikunni.
Telegraph segir frá málinu en félagið er ekki nefnt á nafn, búist er við að félagið fái allar niðurstöður á morgun.
Ef einhver sýni komi til baka jákvæð, verður leikur þessa liðs um helgina blásinn af. Búast má við að enska úrvalsdeildin þurfi að taka ákvörðun um framhaldið í dag.
Búið er að fresta leikjum á Spáni, Ítalíu og í fleiri löndum og búist er við að UEFA banni alla leiki í Meistara og Evrópudeild.