fbpx
Þriðjudagur 26.ágúst 2025
Fréttir

Kórónuveiran: Fólk hringir í 1700 í panik eftir vanhugsaða tölvupósta frá stjórnendum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 2. mars 2020 14:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á blaðamannafundi viðbragðsteymis vegna COVID-19 veirunnar í dag kom fram að stjórnendur stofnana og stórra fyritækja hafi í einhverjum tilvikum sent frá sér vanhugsaða tölvupósta til starfsfólks sem hafi leitt til þess að fólk hafi hringt í læknavaktina 1700 í panik. Álagið á símann þar er mikið og er fólk beðið um að hugleiða vandlega hvort þörf sé á að hringja áður en það gerir það. Hins vegar ganga þeir fyrir sem eru orðnir virkilega veikir en þjónustan sinnir vitjunum auk símaþjónustu. Stjórnendur eru hvattir til að leita sér ráða áður en þeir senda tölvupósta á starfsfólk varðandi veiruna.

Í frétt Fréttablaðsins kom fram að búið er að útskrifa fyrsta manninn sem greindist með veiruna, á föstudag, en hann var útskrifaður af Landspítalanum í dag. Þetta er maður á fimmtugsaldri sem var í skíðaferð á Ítalíu. Tveir aðrir sem hafa greinst eru í einangrun en líðan allra er sögð góð.

Í tali Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis kom fram að um 2.000 tilfelli hafa greinst af veirunni á Ítalíu og mörg tilfelli í Evrópu eiga rætur sínar þar. „Viðbrögð okkar hafa verið í samræmi við þær áætlanir sem hafa verið í gangi, að greina fólk snemma og beita einangrun á þá sem eru greindir og sóttkví á þá sem eru grunaðir um að hafa smitast.“ Vildi Þórólfur koma á framfæri þökkum til þeirra sem hafa verið settir í sóttkví sem valdi miklu raski á lífi þeirra en fólkið hafi farið algjörlega að ráðum sóttvarnalæknis. Um 260 manns eru núna í sóttkví.

Alma Möller landlæknir fór yfir það að langflestir sem smitist af veirunni veikist lítið. Aldraðir og langveikir séu hins vegar veikir fyrir og þurfi að venda þá sérstaklega. Nýtt hjúkrunarheimili var opnað í borginni fyrir skömmu og nú er verið að opna sóttvarnarhús á Rauðarárstíg þar sem Rauði krossinn sinnir sjálfboðaliðastarfi.

Nánari upplýsingar um veirunnar og varnir við henni eru á vef Landlæknisembættisins

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hrikaleg matareitrun á spænsku hóteli – Yfir 100 gestir fárveikir

Hrikaleg matareitrun á spænsku hóteli – Yfir 100 gestir fárveikir
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ræða sameiningu símafyrirtækjanna – „Augljóst tækifæri ef þetta fengist gegnum Samkeppniseftirlitið“

Ræða sameiningu símafyrirtækjanna – „Augljóst tækifæri ef þetta fengist gegnum Samkeppniseftirlitið“
Fréttir
Í gær

Ragnar svarar Þórdísi fullum hálsi: „Ég var alls ekki að hvetja til slíks”

Ragnar svarar Þórdísi fullum hálsi: „Ég var alls ekki að hvetja til slíks”
Fréttir
Í gær

Þekktur tenniskappi tók æðiskast: Hraunaði yfir dómarann og mölbraut spaðann sinn – Sjáðu myndbandið

Þekktur tenniskappi tók æðiskast: Hraunaði yfir dómarann og mölbraut spaðann sinn – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þýska ríkisstjórnin ætlar að svipta synjuðum hælisleitendum lögfræðiaðstoð

Þýska ríkisstjórnin ætlar að svipta synjuðum hælisleitendum lögfræðiaðstoð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ása fær yfir sig skít og skammir fyrir að reyna að græða á því að selja eignir meinta raðmorðingjans

Ása fær yfir sig skít og skammir fyrir að reyna að græða á því að selja eignir meinta raðmorðingjans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kallað eftir endurreisn kvikmyndahúsareksturs í Reykjanesbæ

Kallað eftir endurreisn kvikmyndahúsareksturs í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framkvæmdir við Meðalfellsvatn sagðar hafa staðið yfir í áratugi án nokkurra leyfa

Framkvæmdir við Meðalfellsvatn sagðar hafa staðið yfir í áratugi án nokkurra leyfa